Haförninn með olíu | Barnið vaknaði.. | Snóflóð | Karlakórinn Vísir | Haförninn í hafís | Haförninn fastur | Haförninn og hafís | Verksmiðjurnar og... | Flotanum er nauðsyn... | Með ljúfu geði | Ísuð síld söltuð | 873 síldartunnur | Snarráður ökumaður | Á Síldarmiðunum | Svipmyndir úr síldinni | Geiri og Guggan | Saltað um borð | Dælt úr Eldborg GK ofl.

>>>>>>>>>>> Snóflóð

 

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Föstudagur 9. febrúar 1968

Snjóflóð á Siglufirði

 

Í AFTAKAVEÐRI því, sem geisaði um mestan hluta landsins um helgina, féll snjó-  skriða á íbúðarhúsið við Suðurgötu 76 á Siglufirði.

 Þarna býr Þórir Björnsson,  rafvirki, ásamt konu og fjórum börnum þeirra og vöknuðu þau við það, er elsta dóttir  þeirra, sjö ára, kom upp í rúm til þeirra og vakti þau, en í sömu andrá fylltist  svefnherbergið af miklum þrýsting og hávaða.

Fylltist húsið nær því af snjó og urðu  skemmdirnar gífurlegar.

Myndir þessar hér á síðunni sýna. hvernig húsið leit út eftir að snjóflóðið hafði fallið á  það.

 

Þessi snjóskafl er ekki úti fyrir, heldur inni í stofu  íbúðarhússins. Er þetta annar helmingurinn af dyrunum  inn i stofuna, hinn helmingurinn fannst síðar brotinn  undir snjónum.

 

 

Þarna er verið að moka snjónum úr stofunni

 

Þessar 2 myndir, hér við hlið og fyrir ofan, tók Þórir Björnsson á Polaroid myndavél sýna, sem hann fann í brakinu.

 

 

 

 

 

 

 

 

Jónina með börnin sín fjögur ásamt systur sinni,sem  svaf hjá vinkonu sinni, þegar snjóflóðið féll, en var  annars til heimilis hjá systur sinni. t.f.v. Hermann 5 ára,  Fjóla 1 árs, Jónína, Gunnhildur 7 ára, Björn 6 ára og  Guðrún  Víglundsdóttir. -  

 

Þarna er unnið að því að gera við þakið.

   

 

Unnið að viðgerð á húsinu. langt komið með að loka þakinu til bráðabirgða.

 

Ljósmyndir: Steingrímur.