Fimmtudagur 4. apríl 1968
Frétt Morgunblaðsins, (hef ekki niðurlagið), ljósmynd SK
"Haförninn"fastur í ís
Ísbrák berst suður með Austfjörðum.
Sporin í Þistilfirði eftir refi?
ÍSRÖND rak allgreitt suður með Austurlandi í gær og var ísinn sumstaðar hættulegur skipum. Lítil breyting var á ísnum fyrir Norðurlandi.
Síldarflutningaskipið Haförninn, sem var á leið frá Siglufirði til Englands, sat í gær fastur í ísnum í vök um 6 sjómílur vestur af Rauðanúpum, en tókst í gærkvöldi að brjótast 5 mílur í norðnorðvestur, þar sem skipið ætlar að bíða birtingar og sjá svo hvort ekki megi brjótast áfram.
Þrjú skip brutust út úr Ólafsfirði í gær og ætluðu til Akureyrar, en lentu í miklum erfiðleikum vegna íss í Eyjafirði, og komust loks inn til Dalvíkur.
Í Þistilfirði urðu menn varir við ókennileg spor eftir tvö dýr, sem jafnvel var álitið að væru eftir bjarndýr en fróðir menn telja nú mestar líkur á, að hafi verið stórir refir á ferð. Veðurstofan gerir ekki ráð fyrir neinum breytingum á ísnum Spáð er vestlægri átt í dag, en síðan er talið líklegt að áttin gangi aftur til norðurs.

Haförninn á siglingu í gegnum íshröngl úti fyrir Norðurlandi, en skipið er nú fast í ís
Ísinn út af Austurlandi
Hafís rekur allhratt suður með Austfjörðum, og tilkynnti Langá í fyrrakvöld, að hann væri sum-staðar svo þéttur að hættulegt gæti orðið skipum á siglingaleið. Skipið sigldi út úr íshraflinu um kl. 9:3o um kvöldið á 98. gráðu réttvísandi frá Papey í 37 sjómílna fjarlægð frá eynni þaðan sigldi skipið á stjóraborða í 125 gr. og urðu skipverjar ekki frekar varir við ís.
Íshrönglið hefur þó borist talsverðan spöl suður á bóginn síðan Langa sigldi út úr því og frá Kambanesi var tilkynnt, að mikinn ís væri að sjá þaðan, og hafði hann rekið suður um 29-30 mílur í gær. Nálgaðist hann ytri siglingarleið út af Stöðvarfirði. Er því ísinn heldur að nálgast þar landið og rekur áfram til suðurs.
Ekki er hann þó enn kominn eins langt og ísavorið 1965, en þá varð vart við hann hjá Stokknesi norður af Hornafirði. Ekkert er þó enn því til fyrirstöðu, að hann berist þangað, eða jafnvel lengra núna. Ísinn virðist ekki vera kominn inn á firði fyrir austan þó sum staðar sé hann landfastur,svo sem við Almenningsnes og landmegin við Seley en vindáttin er þannig, að ekki talin hætta .............
|