Miðvikudagur
25.
september
1968
Ljósmyndir og texti: Steingrímur
Hún
losar
til
okkar
daglega
Haferninum,
20.
September.
M.B.
GUÐBJÖRG
Ísafirði
er
það
skipsnafn,
sem
oftast
er
talað
um
og
skrifað
hér
um
borð
í
Haferninum,
og
þó
fyrst
og
fremst
vegna
þess,
að
ekki
líður
sá
dagur,
að
m.b.
Guðbjörg
fái
ekki
einhverja
síld,
stundum
lítið,
stundum
mikið,
en
alltaf
eitthvað.
Og Guðbjörg hefur komið daglega til okkar í þessari fimmtu ferð okkar, þann
tíma sem við höfum verið á miðunum,
m.a.s. sama daginn og hún losaði síld
í m.s. Síldina,
kom hún með um
100
tunnur til okkar, sem við skipverjar keyptum og söltuðum.
Guðbjörg er nú bráðum búin að vera á miðunum í .þrjá mánuði, án þess að koma til Íslands.
Aðeins einu sinni á þessu tímabili hafa skipverjar stigið á land, en það var í Færeyjum. Þangað fóru þeir snemma í sumar með síld.
Allan þennan tíma hefur Ásgeir skipstjóri haft konu sína með sér um borð, og ekki er hægt að segja, að hún sé nein fiskifæla, því að Guðbjörg er með þeim aflahæstu og nálgast óðum toppinn.
Sigríður
Sveinbjörnsdóttir,
eiginkona
skipstjórans
á
m.s.
Guðbjörgu
ÍS.,
Ásgeirs
Guðbjartssonar.
Eiginkona
Ásgeirs, eða Geira, eins og hann er oftast kallaður, heitir
Sigríður Sveinbjörnsdóttir og ástæðan fyrir veru hennar um
borð er sú, að hún axlabrotnaði fyrir nokkru og var á Norðfirði í
læknisaðgerð, er hún féllst á að fara með bónda sínum til
sjós
sér til upplyftingar og heilsubótar, en hún er óvinnufær.
Hún sagði, að það hefði
verið 15. júní, sem þau lögðu af stað á miðin. Henni finnst þetta
skemmtileg tilbreyting, þótt tíminn
sé orðinn heldur lengri, heldur en hún gerði ráð fyrir.
Annars
þyrfti
hún
engu
að
kvíða.
Þau
eiga
fjögur
nær
fullorðin
börn.
Það
yngsta,
15
ára,
það
er
ráðskona
heima,
en
sá
elsti,
19
ára,
er
hann
með
þeim
á
sjónum.
Hann
heitir
Bjartur.
Oft
kemur
það
fyrir,
að
hún,
þótt
handlama
sé,
hjálpar
skipverjum.
Er
það
sérstaklega
þegar
þeir
eru
þreyttir
og
sofa,
meðan
látið
er
reka.
Þá
stendur
hún
vakt
í
brúnni.
- Steingrímur.
Guðbjörg
ÍS 47. Hún var búin að veiða 2.400 tonn 20 sl.

Ásgeir
Guðbjartsson,
skipstjóri
á
ms.
Guðbjörg ÍS 47 -
Ísafirði. -
Bátsmaðurinn
á
Haferninum,
Sigurður
Jónsson,
sést þarna
til
hægri. |