Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Norræn skíðaganga Soðmjölsverksmiðja Strákarnir sem týndust Hafís fyrir norðan Drengur í hættu Bæjarskrifstofan Stanslaus löndun Síld á Sigló Þjóðhátíð og síld Síldina vantar Illa gengur að dæla Siglfirðingar gleðjast Þar sem sólin neitar .. Tunnuflutningar Halla Haralds Tvær fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Fimmtudagur 7. janúar 1965. Ljósmyndir og texti: Steingrímur.

Aage Schiöth formaður Skíðaráðs Siglufjarðar, setur keppnina. Steingrímur Kristjánsson, apótekari og konsúll.

Hlöðver Sigurðsson skólastjóri, gekk

á mettíma; 45 mínútum

Apótekarinn hélt ekki í við bæjarstjórann og skattstjórann

er 5 km. skíðagangan hófst

 

Siglufirði í des 1964 SUNNUDAGINN 28. des. síðastliðins hófst Norræna  skíðagangan hér í Siglufirði kl. 10 að morgni. Aage Schiöth, formaður Skíðasambands.  Siglufjarðar flutti stutt en ágætt ávarp, áður en gangan hófst. Sagði hann m.a.,að  Skíðalandsgangan væri orðin ánægjuleg hefð á sviði skíðaíþróttarinnar, og þátttakan færi sívaxandi, ekki síst á meðal Siglfirðinga, en þeir hefðu allt frá því fyrsta borið sigur úr bítum í  göngu þessari og hefðu fullan hug á að gera það einnig nú.  Þarna til leiks ætluðu að mæta m.a. bæjarfulltrúar og konsúlar, en minni heimtur urðu en  búist hafði verið við. Og var kennt um óhagstæðu veðri, en hríðarél var og kalt, en logn að  heita. Einnig var dimmt og varla myndatöku- hæft. - En þeir sem mættir voru, voru færir í flestan  sjó, - svo enginn þurfi að kvíða. Sigurjón Sæmundsson bæjarstjóri gekk fyrstur, og gekk vasklega, og broshýr eins og hans er jafnan vandi. Næstur honum gekk Ragnar Jóhannesson, skattstjóri, og fulltrúi  Framsóknarflokksins í bæjarstjórninni. Næstur honum gekk Steingrímur Kristjánsson, apótekari  og finnskur konsúll, og hafði hann keypt sér skíði í þessu tilefni, og eftirá kvaðst hann hér eftir 

Bæjarstjórinn og skattstjórinn hefja gönguna.

mundu nota hvern sunnudag  sem  gæfi, til að fara á skíði. Þarna voru mættir tveir skólastjórar,  þeir Jóhann Jóhannsson skólastjóri gagnfræðaskólans og Hlöðver Sigurðsson skólastjóri barnaskólans. Einnig Benedikt Sigurðsson  barna- kennari og bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins. Þarna vakti vasklegur kappi mikla athygli áhorfenda, en hann kom á skíðum og með  bakpoka, auðsjáanlega vel búinn nesti. Kvaðst hann vera á leiðinni yfir skarðið og ætla inn í  Fljót Þarna var kominn Gunnar Ásgrímsson tæpt sextugur, en hann bregður sér oft á skíði sér til  heilsubótar. Hann vissi að vísu ekki um landsgönguna þennan dag en fyrst hann átti leið þarna  fram hjá, þá munaði sig ekkert um að ganga þessa 5 km. að auki við það sem hann ætti eftir að ganga þennan dag. Og stóð hann við það.

Þar með var lokið fyrsta áfanga Siglfirðinga í landsgöngunni, en Siglfirðingar þurfa ekki að flýta sér, því hér er jafnan nógur skíðasnjór, ef ekki niður í  byggð, þá upp í fjöllum. en þangað er stutt að fara fyrir frískt fólk.  

--  S.K.