Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Norræn skíðaganga Soðmjölsverksmiðja Strákarnir sem týndust Hafís fyrir norðan Drengur í hættu Bæjarskrifstofan Stanslaus löndun Síld á Sigló Þjóðhátíð og síld Síldina vantar Illa gengur að dæla Siglfirðingar gleðjast Þar sem sólin neitar .. Tunnuflutningar Halla Haralds Tvær fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Fimmtudagur 18. nóvember 1965 Ljósmynd og texti; Steingrímur

Halla Haraldsdóttir við eitt verka sinna, sem nefnist "Síldarvinna"

Málverka-sýning, húsmóður á Siglufirði

SIGLUFIRÐI 15. nóvember. Í GÆR Og í dag var „Mosaik"  myndasýning í húsakynnum    Æskulýðs- heimilis Siglufjarðar. Sýndar voru 26 myndir eftir frú Höllu Haraldsdóttur, húsfrú á Siglufirði.

Myndir þessar eru mjög sér- kennilegar, vel gerðar og skemmti-legar.

Listakonan sagði mér að hún hefði einna mestan áhuga á að gera myndir úr atvinnulífinu, og þá auðvitað síldarvinnu, enda ber mikið á „síld" á sýningunni. Hún segist fyrst byrja á því að rissa grunnlínur myndanna á kartonpappír, síðan málar hún með sterkum vatnslitum á venjulegan brúnan límpappír, sem hún síðan rífur í smáagnir, eftir því sem við á. Og útkoman er að mínu viti undursamleg og fögur listaverk.

Það er erfitt að segja hvaða mynd er fallegust, því allar eru fallegar og jafnvel gerðar, en einna mestan „aðdráttarkraft" fannst mér mynd, er listakonan kallar „Indversk stúlka", svo og „Móðir og barn" hafa.

Aðspurð kvaðst listakonan hafa stundað nám í Handíðaskólanum á árunum 1951 og 1952, en þó kvaðst hún mest hafa lært á gagnrýni og leiðsögn listakonunnar Barböru Árnason, en Barbara hafi verið sér mjög hjálpleg, og þakkaði hún henni það sem komið væri.

Frú Halla Haraldsdóttir er ung kona, fædd á Siglufirði, og gift hinum kunna skíðakappa Hjálmari Stefánssyni, skrifstofustjóra, og eiga þau þrjá sonu, 2ja - 6 og 10 ára gamla. 

 

"Indversk stúlka"

Umtöluð sýning er sölusýning, og hafa margar myndir þegar selst. Þetta er önnur opinber sýning á myndum eftir Höllu, en sýndar voru myndir eftir hana á „Cafe Scandia" á Akureyri 1963. - S.K.