Fimmtudagur 22. júlí 1965
Ljósmynd og texti: Steingrímur
ÞAÐ EITT SKYGGIR
Á AÐ SÍLDINA VANTAR
Hringur
SI 34 kemur inn með 50-60 lestir af ufsa.
Siglufirði,
18. júlí. EINMUNA tíð hefur verið hér á
Siglufirði undanfarnar vikur, bæði til
sjós og lands. Sjaldan eða aldrei hefur hitinn farið niður fyrir
10 stig, oftast 12-16 stig, bæði daga
og nætur, og heitara þegar sólin skín. Börn og fullorðnir ganga um léttklæddir.
Það eitt skyggir á að síldina
vantar. Síldina, sem hefur byggt upp fjörðinn. Síldina, sem hefur byggt
upp landið. Síldina, sem við bölvum og blessum á víxl.
Hér eru
yfir 20 söltunarstöðvar, sem bíða með tómar tunnur og „atvinnulaust" fólk á
kauptryggingu eftir því að silfur hafsins renni
um greipar þess og fylli tunnurnar, og pyngjur fólksins peningum.
Þó hefur nokkuð stór hópur 40-60 manns,
haft nóg að gera að undanförnu, oft langt fram á kvöld alla daga
vikunnar, en það er starfsfólk hraðfrystihúss SR. Það er
beinlínis góða veðrinu að þakka og mjög góðri ufsaveiði hér í næsta nágrenni,
oft ekki nema 15-60 mínútna stím
frá bryggju.
Þar á drýgstan þátt í m.b. Hringur SI 34, eini Siglfirski
"stóri báturinn", sem leggur upp afla sinn á Siglufirði allt árið um kring, og
raunverulega eini báturinn, sem við Siglfirðingar
finnum að við eigum og þykir vænt um. Því þó skráðir séu hér
nokkrir stórir bátar, bæði nýir
og gamlir, keyptir með beinni og óbeinni aðstoð okkar Siglfirðinga, þá
virðast útgerðarmenn þeirra
gleyma því í hvaða tilgangi þeir fengu aðstoð bæjarins til að kaupa
skipin.
En svo við höld um áfram
með ufsann, þá hefur veiðst óvenju vel af honum, bæði af trillunum og
Hringur SI 34.
Aflasælasta trillan. er Dúfan, skipstjóri Páll Kristjánsson, en
hann hefur búið sér til litla hringnót, og oft komið með það
hlaðinn bát að ekki hefur munað nema
nokkrum sentimetrum að upp í hann flæði. Hringur, skipstjóri Jón
Sveinsson, hefur aflað um 400
tonn af ufsa á síðustu 4-5 vikum, og í dag kom hann með 15 tonn inn og núna
í kvöld um kl. 20, var hann að
kalla í land, og sagðist vera með 50-60 tonn á hliðinni í nótinni við
fjarðarmynnið, 30-40 mínútna stím inn.
Talsvert
hefur líka aflast af flatfiski, en einn bátur stundar snurvoð og leggur
upp hjá Ísafold s.f., og er það Andvari sem mest leggur þar á land.
-------
SK