Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Norræn skíðaganga Soðmjölsverksmiðja Strákarnir sem týndust Hafís fyrir norðan Drengur í hættu Bæjarskrifstofan Stanslaus löndun Síld á Sigló Þjóðhátíð og síld Síldina vantar Illa gengur að dæla Siglfirðingar gleðjast Þar sem sólin neitar .. Tunnuflutningar Halla Haralds Tvær fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Þriðjudagur 27. júlí 1965.  Ljósmynd og texti: Steingrímur

Illa gengur að dæla gamalli síldinni

Siglufirði, 18. jú1í 1965. STÓR og mikil síldardæla hefur verið sett upp hjá SR á Siglufirði.  Áætlað var að hún dældi 1200--1400 málum síldar á klukkustund. Og ætlunin var að nota  þessa dælu til að landa upp úr síldarflutningaskipum. Uppsetningu dælunnar stjórnaði norskur  tæknifræðingur.

 Síðastliðinn fimmtudag kom svo flutningaskipið Westberg með tæp 4000 mál  bræðslusíldar frá Seyðisfirði. Þá þegar var gerði tilraun til að dæla upp úr  flutningaskipinu, og var það Svisslendingurinn. sjálfur hugvits-maðurinn að þessari  dæluaðferð. sem stjórnaði dælunni.

 Fyrstu 10-15 mínúturnar, sem dælan snérist. var afkastageta hennar mjög mikil, á  að giska 300 tonn á klukkustund en svo var eins og drægi úr þrótti hennar og  afköstin minnkuðu niður í litíð sem ekki neitt. sennilega vegna þess að gömul og illa  farm síldin úr skipinu myndaði of mikla mótstöðu -vegna „límkenndra" eiginleika. En  hvað sem þeirri ágiskun líður fór alltaf að sömu leið. Eftir hvert start gekk vel, en dró  síðan úr.

 Til gaman, má geta þess, að eftir eitt startið „lyftist" skipið á sjónum um 5  tommur á um 10 mínútum.Þegar dælt hafði verið um 2000 málum úr skipinu, var hætt að dæla og skipið  losað á venjulegan hátt, undir krana. Ekki þótti árangur dælunnar eins og ætlast var til. Voru gerðar á dælubúnaðinum  smá breytingar og; í nótt :sem leið kom annað flutningaskip að austan, Westby.  Hófust. nú tilraunir á ný, sem sýndu að .sennilega mætti losa skipið á 2-3 klukkustundum, en sá galli er á að blanda þarf svo miklu vatni saman við síldina að ekki  er viðunandi. Ekki er hægt að losna við vatnið úr henni aftur, því síldin úr flutningaskipinu er  yfirleitt það meyr, að vatn samlagast henni að meira eða minna leyti, og þá er þetta orðin mjög  léleg vara.

Hætt var að dæla að svo komnu máli, og skipið losað á venjulegan hátt. Í morgun fóru svo hinir erlendu menn áleiðis til Noregs til að ná í viðbótar útbúnað, sem þeir  telja að verði til fullkominna úrbóta, svo hægt verði að dæla þessari gömlu síld.

Þessi dælutegund mun vera sú fyrsta, sem sett er upp i Evrópu, en þær reynast mjög vel á  ansjósur í Perú og telur sá svissneski að hún muni einnig skila 1200-1400 málum í afköst á  ferskri síld.

Svipuð dæla var sett um , borð í síldarflutningaskipið „Gulla", nú á dögunum á vegum  „Rauðku", en það mun vera stærsta síldardæla, sem sett hefur verið um borð í  síldarflutningaskip, áætluð .um 1000 mála dæla.

s.l. fimmtudag fengu Rauðku menn að „æfa" sig með því áð dæla upp úr  síldarflutningaskipinu Westberg, og má segja að það hafi gengið vel, svo langt sem það  náði, því ekki er gott að dæma um afkastagetu, þar sem dælt var aðeins stutta stund. En:  vonandi gengur þetta að lokum allt að óskum, því þessi löndunaraðferð er það sem  koma skal, þrátt fyrir alla byrjunar örðugleika --SK