Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Norræn skíðaganga Soðmjölsverksmiðja Strákarnir sem týndust Hafís fyrir norðan Drengur í hættu Bæjarskrifstofan Stanslaus löndun Síld á Sigló Þjóðhátíð og síld Síldina vantar Illa gengur að dæla Siglfirðingar gleðjast Þar sem sólin neitar .. Tunnuflutningar Halla Haralds Tvær fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Fimmtudagur 27. ágúst 1965

Ljósmyndir Steingrímur, texti Stefán Friðbjarnarson.

Þar sem sólin neitar að síga í sæ, munu fyrstu jarðgöngin í þjóðvega- kerfinu    

Siglufirði, 25. ágúst:

SÍLDARVERKSMIÐJUR ríkisins á Siglufirði hafa brætt  107.000 mál síldar í sumar, síldarverksmiðjan Rauðka 57 þúsund mál og samtals hefur  verið saltað í 8.300 tunnur. Þetta er rýr hlutur - en ekki er öll nótt úti enn, síldin hefur til  þessa komið jafnt lærðum sem leikum á óvart í allri sinni hegðun.

Ufsinn kom líka gleðilega óvænt. Yfir 1000 tonn af ufsa hafa verið lögð hér á land í  sumar og verið (að mestu) unnin í frystihúsum Ísafoldar og SR. Hefur hann reynst mikil og  góð búbót í annars fremur lélegu atvinnuárferði. Haldið hefur verið áfram að dæla upp sjávarsand, sem undirstöðu í væntanlega flugbraut hér. Hefur því verki miðað  vel áfram, en fyrirhugað er, að meðalstórar innan-landsflugvélar geti athafnað sig hér, þegar  flugbraut þessi verður fullgerð.

 Meðfylgjandi loftmynd sýnir innri hluta Siglufjarðar. Örin fyrir  miðri myndinni sýnir nýja flugbrautarstæðið, vinstri örin hinsvegar „sjúkraflugbrautina", sem  minnstu gerðir flug véla hafa getað lent á „þegar veðurguðir og heppnin haldast í hendur" Neðst á myndinni, sést vegurinn að Hólsbúinu, eina býlið í Siglufirði, utan jarðanna á Siglunesi

. ­Neðst til  vinstri sést þormóðs-eyrin, sem Siglu-fjarðarkaupstaður stendur á.

Fyrir nokkrum vikum hóf  Efra-Fall undirbúningsvinnu við gangagerðina um fjallið Stráka -  og fyrir fáum dögum hófust sprengingar, sem virðast hafa tekist sérlega vel. Allt að 20  Siglfirskir verkamenn munu starfa við verk þetta í vetur, auk verkstjóra og verkfræðinga frá  verktakanum, og er fyrirhugað að vinna á vöktum.

Hér birtist sérlega skemmtileg mynd af Strákafjalli, er göngin, um 800 m að lengd, verða grafin gegn um. Örin til vinstri sýnir  hvert vegarruðningurinn, Siglufjarðarmegin nær og hvar byrjað er að sprengja sig inn í fjallið. Örin hægra megin sýnir gangmunnann fyrirhugaða vestan sagt norðan þess, mjög skammt frá  vitanum á Engidal, þar sem áður var einangrun allsráðandi, en senn byggð við fjölfarna  þjóðbraut, er Siglufjörður tengist þjóðvegakerfi landsins, sem fyrirhugað er haustið 1966.

Ekki er að efa að þessi nýja leið verður fjölfarin, a.m.k. fyrstu árin, og veldur því hvorttveggja, að forvitnilegt verður að aka einu jarðgöngin á Íslandi og leiðin út Almenninga um  Úlfsdali og inn Hvanneyrarströndina Siglufjarðar megin er mjög ögur, ekki síður að kvöld- eða næturlagi þann árstíma, er sólin neitar að síga í Ægi og gyllir lög og  1áð.

Undanfarnar vikur hefur og verið unnin undirbúningsvinna í væntanlegri Hvanneyrarbraut,  sem verður innkeyrslubrautin í kaupstaðinn með tilkomu hins nýja vegar, en senn verður hafist  handa við að steinsteypa nyrstu hluta þeirrar götu.

Myndirnar tók Steingrímur  Kristinsson. - Stefán.