Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Æskulýðsstarf Fjallabátar Rauðka - soðstöð Skarðsmótið ´63 Fjallasýn Fyrsta síldin Refaveiði Dýpkun - Björninn Það var ekkert vont.. Eldur í Sunnu Frumstæð ufsaveiði Myndir úr síldinni Landladga á Sigló Tilraunafloti Útfluttningur 200 ára afmæli Flugslys Raufarhafnarsíld Sundmót Vetrarolimpiuleikar Fimm valdir Snjóflóð á Sigló Óboðinn jólagestur

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

30. maí 1963. Fréttin: Stefán Friðbjarnarson, ljósmyndir: Steingrímur.

Fjallabátar í fjöruleit

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það þykir í frásögu færandi, að ofan Hólavegar, sem er efsta gatan á Siglufirði, eða í fjallshlíðinni ofan við kaupstaðinn, er lítil "skipasmíðastöð", sem fræg er fyrir trillubátasmíði. Það kunna að vera aðrar skipasmíðar í fjöllum, um þær er okkur ókunnugt. Morgunblaðið lét ljósmyndara sinn fylgjast með ferðalagi tveggja trillubáta um götur Siglufjarðar, sem leið liggur á nýju hafnarbryggjuna þar sem þeir voru sjósettir. Á stærstu myndinni eru tvær trillur "komnar á bak" Benzinum og halda á farkosti sínum niður Aðalgötuna. Til vinstri sjást skrifstofur Haraldar Böðvarssonar og & Co, og  Norska  sjómanna- heimilið, en til hægri (eins og vera ber) afgreiðsla Morgunblaðsins á Siglufirði, sem er til húsa í Aðalbúðinni. Á næstu mynd eru trillurnar komnar niður á Hafnarbryggju ásamt forvitnum áhorfendum, og þar kemur "kraninn" til sögunnar, hefur þær áloft og skilar þeim síðan á sjóinn, þann er þær skulu sigla um og sækja björg í bú, Siglfirðinga og þjóðarheildar- innar. Loks er hér mynd af skipasmiðnum sjálfum, og  eiganda Sæfara, Sæmundi Jónssyni, og eigendum Öldunnar, þeim Guðlaugi og Henning Henriksen, sem eru  síldar-saltendur og framkvæmda-menn á fleiri sviðum. Hjá þeim stendur fulltrúi framtíðarinnar, ungur drengur sem horfir á sjó út og nýja bátinn.

Allar myndirnar tók Steingrímur Kristinsson á Siglufirði. -- Stefán.