Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Æskulýðsstarf Fjallabátar Rauðka - soðstöð Skarðsmótið ´63 Fjallasýn Fyrsta síldin Refaveiði Dýpkun - Björninn Það var ekkert vont.. Eldur í Sunnu Frumstæð ufsaveiði Myndir úr síldinni Landladga á Sigló Tilraunafloti Útfluttningur 200 ára afmæli Flugslys Raufarhafnarsíld Sundmót Vetrarolimpiuleikar Fimm valdir Snjóflóð á Sigló Óboðinn jólagestur

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

  Þriðjudagurinn 25. júní 1963, myndir: Steingrímur, texti: Stefán Friðbjarnarson

Dýpkun í Siglufjarðarhöfn

Um 30 ára bil hefur maður nokkur danskrar ættar, Aage Johansen verið búsettur á Siglufirði. Maður þessi er víða þekktur á Norðurlandi sem kafari og fyrir vinnu sína við hafnarframkvæmdir, en það hefur verið ævistarf hans.

Fyrir þremur árum keypti hann ásamt félaga sínum, Birni Þórðarsyni á Siglufirði uppmoksturspramma, sem nefndur er Björninn.  þeir félagar hafa fyrir nokkru lokið við að breyta honum og endurbæta verulega, meðal annars hafa þeir sett á hann 7 tonna krana og öflugar sanddælur. Nú í vor hafa þeir unnið að dýpkun hafnarinnar á Siglufirði fyrir sumarið og hafa grafið úr henni 10-15 þúsund teningsmetra, auk þess hafa þeir rekið niður bryggjustaura í tugatali og annast köfun.   

Björninn að verki, en lest hans rúmar 65 teningsmetra, eða um 100 lestir.

Aage Johansen og Björn Þórðarson hjá krananum á "Birni".