Miðvikudaginn 26. júní 1963
Ljósmyndir: Steingrímur, textinn:
blaðamaður hjá Mbl.

Björgunarmennirnir Sævar
Björnsson, Kristinn Rögnvaldsson og Sigurður Helgason.
Hann hefur
ekki verið feigur, því það gekk svo undursamlega vel að bjarga
honum, sagði Þórunn Þorgeirsdóttir á Siglufirði, móðir Gústafs
litla Daníelssonar sem datt í sjóinn í síðustu viku og var bjargað
meðvitundarlausum, er blaðamaður hringdi til hennar.
Drengirnir hennar tveir, 5 ára og 3ja
ára höfðu farið út að leika sér um morguninn.
Þeir eru svo mikið fyrir
að vera á bryggjunum, sagði hún. --- Þeir hafa farið inn á Leirur
sem eru norðan innri hafnar og Gústi dottið í sjóinn. Það þýðir ekkert að
spyrja strákana hvernig þetta hafi viljað til Þeir vita það ekki; segja
bara að þetta hafi ekkert verið vont. Engir voru að vinna þarna nálægt,
en það vildi svo vel til að
þrír
piltar fóru þarna hjá og heyrðu hrópin í
þeim yngri. Þeir voru að sækja planka og
voru búnir að fara eina ferð, en þurftu
að fara aftur. Þá var Gústaf
meðvitundarlaus í sjónum. Piltarnir sem
heita Sævar Björnsson, Suðurgötu 51,
Kristinn Rögnvaldsson, sama stað og
Sigurður
Það var ekkert vont
að
detta í sjóinn.
Helgason Suðurgötu 41b, gátu gripið í
Gústaf, rétt þegar hann var að sökkva.
Þeir kunnu bæði venjulegar
björgunaræfingar og einnig
blástursaðferðina og byrjuðu strax að
beita þeim. Náðu þeir öllum sjó upp úr
drengnum.
Þórunn Þorgeirsdóttir með Gústaf
litla son sinn.
Einnig
vildi svo heppilega til að einmitt
í sömu mund kom lögreglubíllinn. Maður
að nafni Jóhann Vilbergsson, sem var að
vinna í Rauðku, sá þegar Gústaf datt, en
sjór er þarna á milli (400-500 m.). Hann
hljóp upp á lögreglustöð og þeir komu í
bílnum á vettvang strax eftir að
piltarnir höfðu dregið drenginn upp og
lífgað hann við. Hann fékk svo sprautu
og var hafður inni í nokkra daga og varð
ekkert meint af þessu. Hann er svo
hraustur.
-- Heldurðu að þeir fari aftur niður á
bryggju? -- Ekki segja þeir, segir
Þórunn, ern er auðheyranlega ekki
sannfærð. -- þetta gleymist fljótt á
þessum aldri. Það eru eru vandræði hvað
krakkarnir hérna eru mikið á bryggjunum
Bræðurnir litlu. Annar
datt í sjóinn og hinn hrópaði á hjálp