Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Snjóþungi á Sigló Tunnuverksmiðjubruni Eldur í tunnuverksmiðju Ferðasaga myndanna Fréttaskýring Erlingur Jónson Tunuverksm.viðtöl Þrjár fréttir frá Sigló Áramótin 63/64 Brotin rúða Siglufjarðarskarð fært Skotkeppni Verkefnasýning Skemmtileg skíðakeppni Skarðsmótið 1963 Göngukeppni Draugur strandar Nornen sækir Draug Sjávarborg Fyrsta síldarsöltunin Sigvald tók niðri Siglfirðingur SI 150 Ufsinn í hættu Falleg Síld á Sigló Svipmyndir - Sigluf. Lauginni lokað Síld í september Þrjár fréttir Borgarísjaki Fjórar fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Föstudagurinn 10. janúar 1964

Athugið; myndasyrpa, yfir 20 myndir, frá þessum bruna eru hér 

Frá bruna Tunnuverksmiðjunnar í gær.

(Athugasemd. SK árið 2001; hvíti bjarminn yfir verksmiðjunni er ELDUR,

ekki reykur, kvoðuborið  þakið rauð glóandi, það logaði allt, um það bil sem allt hrundi )

Framhald af forsíðu.... (2)Tunnuverksmiðjan

Eftir að vaktmönnum hafði tekist að bæla eldinn, sást hann ekki en vitað hvar hann var. Geysilegt reykhaf myndaðist í húsinu, og sást ekki handaskil. Í alla nótt, frá því að eldurinn kom upp og þar til klukkan 6 í morgun, er slökkviliðsmenn urður að flýja verksmiðjuna, var barist látlaust við þennan eld, sem ekki var séður vegna aðstæðna. Eins og fyrr getur var vitað að hann var inni í 40 standarðar af timbri. Var eiginlega sama hvar sprautað var, þar sem stæðan var svo þétt við vegginn. Í verksmiðjunni voru alls um 100 standarðar af tunnuefni, að því er verkstjórinn, Ástvaldur Einarsson, segir.

 

Slökkviliðsmenn voru búnir súrefnisgrímum inni í reykhafinu, enda grímulausum mönnum ekki vært þar inni stundinni lengur. 10-12 menn voru inni í einu og gekk ört á súrefnisbirgðirnar, enda fór svo, um kl. sex var súrefnið á þrotum. Var þá ekki um annað að ræða en yfirgefa húsið og loka því. Gerðar voru ráðstagfanir til að fá flugvél frá Akureyri með súrefni, og reyna að varpa hylkjunum niður í fallhlíf. Til þess kom þó ekki, enda mikill hliðarvindur á flugbrautina á Akureyri.

 

GEYSILEGT ELDHAF

Magnaðist nú eldurinn inni í húsinu en var þó ekki sjáanlegur fyrst um sinn. Kl.10 mínútur yfir níu var Steingrímur Kristinsson, annar fréttaritara Mbl. á Siglufirði, staddur uppi á lýsistank Síldarverksmiðja ríkisins rétt hjá Tunnuverksmiðjunni og fylgdist þaðan með því sem  gerðist. Sá hann þá hvar eldurinn kom upp með skorsteininum, og þakið allt verða síðan alelda  áður en varði.  Logaði mjög skarpt í öllu húsinu, og varð af geysilegt eldhaf.

 

þegar eldurinn var kominn, inn undir sökkul hússins urðu margar miklar sprengingar í því. Telja menn þær stafi af því að steinsteypan hafi snögghitnað og sprungið, einnig af því að tómir síldarkútar (áttungar o.s.frv.) svo og saltpéturskútar hafi sprungið í loft upp.

Kemur ein orsökin til greina eða trúlega allar. Síldarútvegsnefnd átti saltpéturskútana og einnig geymdi hún þarna sykur og krydd sem allt eyðilagðist.

 Einni klukkustund eftir að eldurinn braut niður þakið, var húsið gjörsamlega fallið. Stálbitar í lofti ýmist bráðnuðu eða svignuðu undan hinum gífurlega hita. Féll húsið allt, þak og veggir, niður að gluggum. Er húsið sjálft gjörsamlega ónýtt, og allar vélar taldar ónýtar líka, af eldi og hita, en eldurinn var þó aðalega í timbrinu á lagernum. Er beint tjón því gífurlega mikið og skiptir vafalaust mörgum miljónum, enda inni um 100 standarar af tunnuefni, eins og áður segir.

 

 Óbeint tjón er einnig geysilegt.  Í verksmiðjunni unnu um 40 mans og er nú fyrirsjáanlegt að þeir verði flestir eða allir atvinnulausir. Er það mikið áfall fyrir bæjarfélagið í heild.

 

Fleiri hús í hættu

Á meðan eldurinn var mestur, voru þrjú hús í talsverðri hættu, einkum tvö. Hinumegin götunnar er hin mikla síldarmjölsgeymsla SR, hið svonefnda "Ákavíti". Óttuðust menn um hríð að hitinn frá bálinu mundi eyðileggja síldarmjöl það, sem geymt var við þann vegg, er vissi að brunanum.

 

Ekki varð þó svo, og er því einkum þakkað, að nokkur vindur stóð um sundið á milli mjölgeymslunnar og brennandi verksmiðjunnar, og kældi vegginn.

 

Austan Tunnuverksmiðjunnar standa tvö hús, og var mjög óttast að í þeim kviknaði. Gluggar sviðnuðu og rúður sprungu í báðum þessum húsum og rauk úr þaki þeirra beggja.  Slökkviliðinu tókst þó að verja húsin, einkum með því að negla stórar asbest plötur fyrir glugga þeirra. 

 

Ef Grána gamla brynni.

Eftir Tunnuverksmiðjubrunann í gær setti óhug að Siglfirðingum, að því er ljósmyndari blaðsins Steingrímur Kristinsson tjáði blaðinu. Var mörgum hugsað til þess hvað gerðist ef eldur yrði laus í  Gránu, - gömlu síldarverksmiðjunni, sem er stórt fjögurra hæða timburhús. Við hliðina á henni eru tveir tankar, annar með jarðolíu og hinn með lýsi og aðeins 1½ m. á milli.

 Í suðaustan roki mundi sennilega líka brenna vélaverkstæði Rauðku, sem er fyrir norðan og mjölhús Rauðku sem er fyrir vestan, í 4-5 m. fjarlægð og slippurinn sem er hinum megin við götuna, einnig söltunarstöð og íbúðarhús. 

Í gömlu Gránu hefur Bæjarútgerðin geymslu og þurrkhús, og taka tryggingarfélögin það ekki í  tryggingu nema fyrir margfalt tryggingargjald.

==================================================================

 [Járngrindarhús Tunnuverksmiðjunnar, var allt klætt bárujárni sem og var húðað báðum megin með þykkri kvoðu í líkingu við Tektyl og var mjög eldfimt við hita, enda logaði þakið eins og helt væri bensin yfir; Athugasemd SK árið 2001]