Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Snjóþungi á Sigló Tunnuverksmiðjubruni Eldur í tunnuverksmiðju Ferðasaga myndanna Fréttaskýring Erlingur Jónson Tunuverksm.viðtöl Þrjár fréttir frá Sigló Áramótin 63/64 Brotin rúða Siglufjarðarskarð fært Skotkeppni Verkefnasýning Skemmtileg skíðakeppni Skarðsmótið 1963 Göngukeppni Draugur strandar Nornen sækir Draug Sjávarborg Fyrsta síldarsöltunin Sigvald tók niðri Siglfirðingur SI 150 Ufsinn í hættu Falleg Síld á Sigló Svipmyndir - Sigluf. Lauginni lokað Síld í september Þrjár fréttir Borgarísjaki Fjórar fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir
33 Skíðamyndir
27 Skíðamyndir

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Fimmtudagur 21. maí. Ljósmyndir og texti: Steingrímur

Þessari síðu fylgja "auka" alls 102  ljósmyndir, sem teknar voru á Skarðsmótinu sem haldið var í  Siglufjarðarskarði 16-17 maí 1964. Smellið á "skíðamyndir" til vinstri.

Skarðsmótið 1964

Skíðafólkið, sumt léttklætt, á efri hluta mótsvæðisins. Örin bendir á sjálft Siglufjarðarskarðið

Siglufirði 18. maí:--- HIÐ ÁRLEGA skíðamót, Skarðsmótið, hófst s.l. laugardag 16. þ.m. kl. 16.  Sólskyn og hlítt veður var og góð aðstaða til skíðamóts. Aldrei áður hefur verið jafn fjölmennt af keppendum á Skarðsmóti og nú., eða 28 keppendur frá Siglufirði, 19 frá Reykjavík, 11 frá Akureyri, 7 frá Ólafsfirði, 5 frá Ísafirði og 2 frá Seyðisfirði, en það er í fyrsta skipti sem Seyðfirðingar sækja þetta mót. Samtals 71 þátttakandi.

Mótstjóri var Sverrir Sveinsson og setti hann mótið og bauð meðal annars Seyðfirðingana sérstaklega velkomna og sagðist vona að þeir og að allir aðrir bæir og íþróttafélög héldu áfram að senda fulltrúa sína á þetta skemmtilega skíðamót.  Keppnin sjálf hófst, milli unglinga 12-14 ára í svigi. Þessi keppni var bæði skemmtileg og spennandi, 9 drengir sýndu þarna hvað þeir kátu, en mest bar þó á tveim drengjum frá Reykjavík, þeim Eyþóri Haraldssyni og Tómasi Jónssyni, enda kom engum á óvart, þegar þeir sigruðu glæsilega,

  1. Eyþór Haraldsson á 55,5 sek.

  2. Tómas Jónsson  á 56,1 sek.

  3. Kristján Bjarnason, ??

Kristján er frændi Tómasar, en allir eiga þessir ungu menn það sameiginlegt að  Siglfirskt blóð rennur í æðum þeirra.

Sigríður Júlíusdóttir, Siglufirði, 15 ára gömul sigraði í svigi og stórsvigi kvenna og sameiginlegt í alpatvíkeppni,. -  Hún mátti ekki taka þátt í síðasta landsmóti vegna of  lágs aldurs, en nú vann hún Íslandsmeistarann

Næst var keppt í svigi kvenna. þar tóku þátt í þrjár stúlkur frá Siglufirði og ein frá Reykjavík, Karólína Guðmundsdóttir, sem Siglfirðingar eru orðnir hrifnir af, fyrir að því er virðist vaxandi áhuga hennar á skíðaíþróttinni -- og ein stúlka frá Akureyri. Aðeins tvær stúlkur luku þessari keppni, en það voru:

  1.  Sigríður Júlíusdóttir nr. á 86,5 sek.

  2.  Kristín Þorgeirsdóttir á 126,5 sek.,

Báðar frá Siglufirði.  Af  keppni stúlkna lokinni hófst keppni í svigi karla.  Alls tóku 56 keppendur þátt í henni og má segja allir bestu svigmenn landsins.  Að vísu urðu úrslit önnur en búist var við, því hinir þrír "stóru", sem Siglfirðingar hafa flokkað; Jóhann, Kristinn og Svanberg, fengu allir slæmar byltur og töpuðu því nokkrum dýrmætum sek., en tími 5 fyrstu keppanda var:

  1. Samúel Gústafsson, Ísafirði, samanlagt: 113,5 sek.

  2. Reynir Brynjólfsson, Ak. samanlagt: 113,6 sek.

  3. Ásgrímur Ingólfsson  Sigl. samanlagt: 115,1 sek.

  4. Ívar Sigmundsson Ak. samanlagt: 121,7 sek.

  5. Jóhann Vilbergsson Sigl. samanlagt: 124,7 sek.

Daginn eftir, hvítasunnudag kl. 11 f.hádegi var mótinu haldið áfram, en þá hófst stórsvig kvenna og karla.  Stórsvig kvenna var hafið ofarlega úr hlíðum Illviðrishnjúks,

Jóhann Vilbergsson sigurvegari í stórsvigi og tvíkeppni

og voru sem fyrr 5 keppendur. Úrslit urðu:

  1.  Sigríður Júlíusdóttir, Sigl., á 76,4 sek.

  2. Árdís Þórðardóttir Sigl. Skíðadrottning frá síðasta Íslandsmóti, á 78,5 sek.

  3. Karólína Guðmundsdóttir frá Reykjavík á 78,8 sek

Stórsvig karla var hafið frá "topp hlíð" Illviðrishnjúks og voru 58 keppendur skráðir til leiks.  Þetta var löng og mikil braut, en skemmtileg, en rásstaður var í um 700 m. hæð yfir sjávarmáli og sást vítt yfir, bæði í Siglufjörð og Skagafjörð, sumir töldu jafnvel að rásmarkið væri í Skagafjarðarsýslu, en lokið og komið í mark í Siglufirði. Mótinu lauk með sigri Jóhanns Vilbergssonar, Úrslitin:

  1. Jóhann Vilbergsson Sigl. 88,3 sek.

  2. Kristinn Benediktsson Ísaf. 90,4 sek.

  3. Svanberg Þórðarson Ólafsf. 96,4 sek.

  4. Hafsteinn Sigurðsson Ísaf. 96,5 sek.

  5. Hjálmar Stefánsson Sigl. 96,6 sek.

Sigurvegari í Alpa tvíkeppni kvenna varð

  1. Sigríður Júlíusdóttir Sigl. með 0,00 stig

  2. Kristín Þorgeirsdóttir Sigl. með 40,4 stig

Tveir ungir garpar með Siglfirskt blóð í æðum, kepptu fyrir Reykjavík og vöktu athygli. Þeir eru Tómas Jónsson og Eyþór Haraldsson.

Alpa-tvíkeppni karla:
  1. Jóhann Vilbergsson Sigl. 6,01 stig.
  2. Kristinn Benediktsson Ísaf. 9,69 stig.
  3. Reynir Brynjólfsson Akur. 19,36 stig.

Að loknu skíðamótinu var háð knattspyrnukappleikur á milli Siglfirsku skíðamanna og aðkomu skíðamanna. Lið aðkomumanna var skipað 2  Ólafsfirðingum, 4  Akureyringum og 5 Reykvíkingum. Leiknum lauk með sigri aðkomumanna , fjögur mörk gegn einu.

Klukkan 21 um kvöldið var skíðamönnum haldið kaffisamsæti, þar fór fram verðlauna afhending, kvikmyndasýning frá Olympímótinu í Innsbruck, sem Valdimar Örnólfsson hafði tekið. Og á miðnætti var stigin dans til klukkan 4 um morguninn

Samúel Gústafsson sigurvegari í svigi karla.