Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Snjóþungi á Sigló Tunnuverksmiðjubruni Eldur í tunnuverksmiðju Ferðasaga myndanna Fréttaskýring Erlingur Jónson Tunuverksm.viðtöl Þrjár fréttir frá Sigló Áramótin 63/64 Brotin rúða Siglufjarðarskarð fært Skotkeppni Verkefnasýning Skemmtileg skíðakeppni Skarðsmótið 1963 Göngukeppni Draugur strandar Nornen sækir Draug Sjávarborg Fyrsta síldarsöltunin Sigvald tók niðri Siglfirðingur SI 150 Ufsinn í hættu Falleg Síld á Sigló Svipmyndir - Sigluf. Lauginni lokað Síld í september Þrjár fréttir Borgarísjaki Fjórar fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Fimmtudagur 9. júlí 1964. 

Ljósmynd: Steingrímur, texti Stefán Friðbjarnarson. (nema Athugasemd)

Skuttogarinn "Siglfirðingur" farinn á veiðar

Siglfirðingur SI 150 kemur til Siglufjarðar aðfaranótt mánudags 6. júlí 1964

SIGLUFIRÐI, 9. júlí.  

HINN nýi skuttogari, SIGLFIRÐINGUR SI 150, kom  til Siglufjarðar aðfaranótt mánudags 6.  júlí. Skipið hélt út á veiðar aðfaranótt  miðvikudags, en hefur enn ekkert fengið,  enda engin veiði verið. 

Skipið fór út með síldarnót af fullkomnasta  tagi, en siðar er von á Þýsku flottrolli, sem  ætlunin er að reyna í sumar. Skipið er alger nýjung í skipastól Íslendinga. það er 270 tonn, búið öllum fullkomnustu tækjum. Á heimliðinni reyndist það vel; mestur siglingarhraði 12 mílur Skipið er eign Siglfirðings hf. en  aðalhluthafar þess eru yfirmenn skipsins,  Kaupfélag Siglfirðinga og framkvæmdastjóra félagsins Eyþór Hallsson.

Skipstjóri er Páll Gestsson, stýrimaður  Axel Schiöth og 1. vélstjóri Agnar Þór Haraldsson; allt ungir Siglfirskir sjómenn.

St.

Athugasemd S.K. árið 2001, Til fróðleiks: 

Skuttogarinn Siglfirðingur SI 150, er fyrsti Skuttogarinn sem smíðaður er erlendis fyrir Íslendinga. Skuttogarinn Dagný SI 70, er fyrsti Skuttogarinn sem keyptur er notaður til Íslands og Skuttogarinn Stálvík SI 1, er fyrsti Skuttogarinn sem smíðaður er á Íslandi. Siglfirðingar voru frumkvöðlar í skuttogara útgerð. á þessum tímum.