Miðvikudagur 12. ágúst
1964 Ljósmyndir: Steingrímur, texti: Stefán
Friðbjarnarson Ljósmyndirnar eru teknar 23. júlí 1964, á
síldarsöltunarstöðvum Ísafold; Þráin Sigurðsson og Nöf; Skafti
StefánssonSvipmyndir frá Siglufirði
SÍÐAST LIÐNA nótt var saltað á Siglufirði hjá tveimur söltunarstöðvum, hjá Nöf og söltunarstöð Kaupfélegs Siglfirðinga, sagði fréttaritari Mbl. á Siglufirði, Stefán Friðbjarnarsson, í viðtali við Mbl. í gær.
Tvö eða þrjú skip eru væntanleg með
söltunarsíld, sem m.a. fer til
söltunarstöðvar Ýmis h.f. Á Siglufirði
eru fullkomnustu og afkastamestu
síldarbræðslur landsins og telja
Siglfirðingar, að leggja beri áherslu á
að nýta þær
betur.
Þrjár siglfirskar blómarósir við
síldarsöltun hjá Nöf. lengst til
vinstri: Alda Möller sem hlaut hæstu
landsprófs einkunn sem gefin hefur verið
s.l. vor. Í miðið systir hennar Jóna,
síðan Guðrún Stefánsdóttir
Hafa 4 skip á
vegum Síldarverksmiðja ríkisins verið i síldarflutningum í sumar. 230 þúsund mál
hafa nú farið í bræðslu, og er það
töluvert meira en á síðasta sumri. - Atvinna Siglfirðinga hefur byggst á
söltunarstöðvum. Starfandi er 21 söltunarstöð á Siglufirði , en þar af eru
13 söltunarstöðvar, sem ekkert hafa enn
fengið til söltunar. Í venjulegu árferði
hefur fólk haft atvinnu við síldina fram
undir áramót. Þegar kaup- tryggingar-
tímabilið rennur út um næstu mánaðamót
horfir því til hreinna vandræða nema
eitthvað sérstakt komi til sögunnar.
Unnið er nú að smíði tunnuverksmiðju í
stað þeirrar sem brann s.l. vetur. Er
áætlað, að þeir, sem hafa með
bygginguna að gera,skili henni um
mánaðarmót desember. Ráðgert er, að
hin nýja tunnuverksmiðja taki til starfa
upp úr áramótunum. Veltur á miklu að
þessi áætlun standist og mundi hafa
mikið að segja, að unnið væri á tveimur
vöktum. - Ef þessi atvinnufyrirtæki,
frystihúsin tvö, tunnuverksmiðjan og
niðurlagninga- verksmiðjan á vegum
Síldarverksmiðja ríkisins,
verða vel rekin, er mesta vandanum bægt frá
dyrum Siglfirðinga, sagði Stefán að lokum.
Gjafar frá Vestmannaeyjum og Æskan frá
Siglufirði, við löndunarbryggju
Ísafold s.f. Nýtt löndunarband sem
flytur síldina frá skipum í síldarkassa
sést greinilega á myndinni.
Það
er langt ofan í tunnubotninn, þegar verkakonan er ung og smá. Fætur
lyftast frá bryggju - og við skulum vona að hún hafi komið síldinni
á sinn stað.
Ekki
eru allar fleytur af nýjustu gerð og með "öll fullkomnustu veiði
og leitartæki", eins og segir í fréttum. En veiðiáhuginn er sá
sami, þótt skipið sé af frumlegri gerð og róa þurfi með
heimatilbúnum árum. Og oftast er komið í vör með dágóða veiði,
því sumum nægir snæri og krókur
Myndirnar á síðunni tók
ljósmyndari Mbl. á Siglufirði í fyrri mánuði, þegar síld barst á Siglufjörð. Hennar hafði verið beðið með óþreyju og þegar hún loksins kom leyndi
sér ekki gleðisvipurinn á andliti fólksins. Það varð aftur líf og
fjör á síldarplaninu og Siglfirðingar vonuðu, að þetta yrði vísir
að öðru meiru.