Ljósmyndir og texti: Steingrímur (myndir teknar
19 apríl 64)
Fleiri myndir frá þessari
uppákomu, ef þú
smellir á hnappinn "fleiri myndir"
Skemmtileg
skíðakeppni á Siglufirði.
FYRIR nokkru
[19. apríl] var háð hér allnýstárleg skíðakeppni, - nokkurskonar
firmakeppni, en frábrugðin venjulegri firmakeppni að því leiti að
venjulega eru þaulvanir skíðagarpar, sem keppa og er þá dregið um hver á
að keppa fyrir hvert firma. En nú lagði hvert firma sjálft til kappana, og
varð viðkomandi keppandi að ver atarfsmaður fyrirtækisins.
Nokkrir keppendur bíða
spenntir eftir að þeirra maður komi, til að geta þá skjótt tekið
við
Úr þessu varð hörku spennandi
boðganga 4x2 km., sem þátt tóku alls 13 sveitir frá 12
fyrir-tækjum. Í þessari göngukeppni
var sett það
skilyrði að enginn af þeim sem kepptu á
síðasta landsmóti mátti taka þátt í boðgöngunni. Og því var
þarna all fjölbreyttur hópur, td. forstjóri Kjötbúðar Siglufjarðar
Sigurður Þorsteinsson, Kaupfélagsstjórinn; Skarphéðinn Guðmundsson,
múrarameistarinn; Baldur Ólafsson, rafvirkjameistarinn Sverrir Sveinsson,
ofl. ofl., trésmiðir,
verkamenn,
rafvirkjar, múrarar, skrifstofumenn, verslunarmenn, símritarar, símvirki,
vélstjórar, vélvirkjar, skipstjórar og hin þekkta hljómsveit "Gautar"
Keppnin var öll hin fjörugasta og höfðu allir
ánægju af, bæði keppendur og áhorfendur sem voru mjög margir,
sennilega ekki langt frá að um helmingur bæjarbúa hafi verið
þarna samankominn í glampandi sólskini og logni. Nægur snjór
var og öll skilyrði hin ákjósanlegustu.
A-sveit
Trésmóiðaverkstæðisins við Grundargötu 1, bar sigur úr bítum og
kom það fáum á óvart, því Skúli Jónasson, trésmíðameistari,
virðist ekki ráða til sín á verkstæði sitt aðra en skíðagarpa,
en hann sendi út tvær sveitir fram á víglínuna og hefði getað sent
fleiri, ef reglurnar hefðu ekki komið í veg fyrir
það, en þórhallur
Sveinsson.
Elsti þátttakandinn Erlendur
Þórarinsson, rúmlega fimmtugur kemur
að marki. Hann keppti fyrir
Vatnsveituna og gekk á betri tíma en
margir hinna yngri 10,46 mínútur.
Þórhallur Þorláksson fyrir
Hljómsveitina Gautar sést koma rétt
á eftir Erlendi.
Íslandsmeistari í göngur 17-19
ára og Guðmundur Sveinsson sem var þriðji í 30 km. göngu á síðasta
Íslandsmóti eru báðir að læra hjá Skúla. Einnig átti "Skúla" maður, Hreinn
Júlíusson besta tímann, eða 8,50 mínútur.
Sveitin
Sigursæla t.f.v. Benedikt Sigurjónsson, Hreinn júlíusson, Skúli
Jónasson (meistarinn), Sigurður Helgason og Jón Sigurðsson