Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Snjóþungi á Sigló Tunnuverksmiðjubruni Eldur í tunnuverksmiðju Ferðasaga myndanna Fréttaskýring Erlingur Jónson Tunuverksm.viðtöl Þrjár fréttir frá Sigló Áramótin 63/64 Brotin rúða Siglufjarðarskarð fært Skotkeppni Verkefnasýning Skemmtileg skíðakeppni Skarðsmótið 1963 Göngukeppni Draugur strandar Nornen sækir Draug Sjávarborg Fyrsta síldarsöltunin Sigvald tók niðri Siglfirðingur SI 150 Ufsinn í hættu Falleg Síld á Sigló Svipmyndir - Sigluf. Lauginni lokað Síld í september Þrjár fréttir Borgarísjaki Fjórar fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Föstudagurinn 10. janúar 1964 (baksíða) Ljósmynd: Ingvar Björnsson.

Ferðasaga myndanna frá Siglufirði

MYNDIR þær af bruna Tunnuverksmiðjunnar á Siglufirði, sem birtist í dag eiga sér sögu --- raunar  ferðasögu. Okkur hér á Mbl. þótti hún skemmtileg og látum hans fylgja myndunum til gamans.

 

Steingrímur Kristinsson ljós-myndari á Siglufirði var á ferli á brunastaðnum í gærmorgun og aðfaranótt miðvikudags (skemmdi reyndar 5000 kr. myndavél, er ól slitnaði þegar hann var staddur uppi á olíutanki). --  Hann sendi svo myndirnar í  snarheitum með mótorbát til Haganesvíkur, þar sem Björn í Bæ, fréttaritari blaðsins á Höfðaströndinni ætlaði að taka þær og aka með til Sauðárkróks, en fréttaritarinn þar, Guðjón Sigurðsson, að flytja þær með hraði í Varmahlíð í veg fyrir Akureyrarbíl. Þetta var sem sé skipulagt og átti að duga. En ekki var reiknað með höfuð skepnunum.

 

Björn í Bæ sagði svo frá er hann kom til Sauðárkróks:

Við fórum af stað kl.1,30 áleiðis til haganesvíkur, til að ná í filmurnar, það var sunnan rok og munaði litlu að bíllinn fyki á leiðinni út af veginum. Þegar báturinn kom til Haganesvíkur var ófært filmurnar til Sauðárkróks og Guðjón í Varmahlíð. 

Þar beið vörubíll frá Stefni á Akureyri, sem var á leið suður og fréttaritarinn á Akureyri Sverrir Pálsson hafði beðið liðsinnis. Og loks óku tveir blaðamenn á léttum bíl norður í Hvalfjörð á móti filmunum, því þá var hver mínúta dýmæt orðin.

Ólafur K Magnússon, ljósmyndari framkallaði og myndamótamenn biðu til að taka myndmót og hér birtast þær í blaðinu í dag.

 

 

(Athugasend SK árið 2001;  þessi mynd er tekin af Ingvari Björnssyni rafvirkja. Myndin er skönnuð

beint úr Mbl. þar sem viðkomandi fima/mynd er ekki í minni vörslu.)