Úr
Vikublaðinu
Siglufirði.
1923 - 1930
Siglfirðingur 10.maí
1930, Fréttapistillinn "Bæjarfréttir"
Nýja Bíó - sýnir í kvöld í
síðasta sinn hina ágætu mynd Sorrel og sonur hans.
Annað kvöld kl. 6 Tommy Akkins,
áhrifamikla bardagamynd frá Arabíu, líka sýnd í síðasta sinn.
En kl. hálf níu verður sýnd
myndin Maðurinn sem hlær. Stórfræg mynd eftir skáldsögu Victors Hugo
Siglfirðingur 31.maí
1930, Fréttapistillinn "Bæjarfréttir"
Nýja Bíó - Engin sýning í
kvöld
Á morgun kl. 6 verður sýndur
Þrælaskipið. Ágætis mynd um ástir og útlegð
Kl hálf níu verður sýnd ný mynd
Leðurblaðkan. Spennandi leynilögreglumynd.
Börn fá ekki aðgang að síðar
myndinni.
Siglfirðingur 7. júní
1930, Fréttapistillinn "Bæjarfréttir"
Nýja Bíó - sýnir annan í
hvítasunnu kl.6 eh. mynd sem heitir Snjóskriðan Einhver allra besta
mynd sem hér hefur verið sýnd lengi.
Kl. hálf níu verður sýn myndin
Lautinant hennar hátignar. Bráðskemmtileg mynd um rússakeisara og konu
hans.
Siglfirðingur:
Bæjarfréttir 14. júní 1930
Nýja Bíó
Hefur engar sýningar í kvöld. Á
morgun kl. 6 veður sýndur Leyndardómur Lundunarborgar. Ágæt mynd um
átakanlegustu viðburði lífsins. Klukkan hálf níu verður sýnd Ævintýri
vopnasmyglarans, bráðskemmtileg mynd frá byrjun til enda, gerist á
Suðurhafseyjum
Siglfirðingur:
Bæjarfréttir 21. júní 1930
Nýja Bíó
Sýnir í kvöld og klukkan 6 annað kvöld hina
heimsfrægu mynd Sigrún á Sunnuhvoli. Mynd þessi hefur áður verið sýnd
hér, en er ein þeirra mynda sem alltaf er ný þó gömul verði. Klukkan hálf níu
annað kvöld verður sýnd spennu og efnismikil mynd Naðran í paradís. Þar
fá börn ekki aðgang.
Siglfirðingur 24. janúar
1930 Auglýsing.
Nýja Bíó
Sýnir í kvöld kl. 8½
Arnarunginn. Ný áhrifamikil mynd frá Ameríku. Á morgun kl. 6 verður
sýndur Ástarvalsinn, en kl.8½ ný mynd Næturlíf í London. Aðalhlutverk
leikur maðurinn með þúsund andlitin. Börnum bannaður aðgangur
Tilvitnun mín:
Ekki veit ég hver þessi leikari var sem kallaður var maðurinn með þúsund
andlitin. En fróðlegt væri að fá um það vitneskju, ef einhver veit það.
SK