Úr Vikublaðinu
Siglfirðingur: Bæjarfréttir 27. júní 1931
Nýja Bíó
sýnir Örkin hans Nóa.
Söng- tal- og hljómmynd, í 11
þáttum
Tilvitnun mín:
Úff,
sýningarmaðurinn hlýtur að hafa verið þreyttur og sveittur eftir þessa
sýningu. SK
Siglfirðingur 7. nóvember 1931
Auglýsing.
Nýja Bíó
Sýnir í kvöld kl.8½
Einkaritari bankastjórans í síðasta sinn Á morgun kl. 6 verður sýnd
Tak Tone og Tosser með Litla og Stóra. Kl. 8½ ný mynd Jazzsöngvarinn
með Al Jolson í aðalhlutverki.
Tilvitnun mín:
Til að byrja með voru sýningar
talmynda stopular, en í lok ársins 1931 fór þeim að fjölga. Sýndar voru ma.
myndir gerðum í Danmörku, Þýskalandi, Korsíku, Englandi, Svíþjóð og frá
Bandaríkjunum, sérstaklega eftir að talmyndir voru teknar til sýningar
Siglfirðingur: Auglýsing 23. desember 1931
Skemmtanir
Almennir dansleikir verða haldnir í Bíó eftir Bíósýningar,
annan jóladag, gamlárskvöld og á þrettándanum. Ágóðinn rennur til
kirkjunnar.
Í sama augnamiði er Ásgeir Bjarnason að stofna
dansklúbb og verður fyrsti dansleikurinn sunnu-dagskvöldið 27. desember á Bíó
Café
Siglfirðingur: Auglýsing 23. desember
1931
Gleðileg Jól
Óskar viðskiptamönnum
sínum,
Bíó Búðin
Siglfirðingur: Bæjarfréttir 13. maí 1933
Nýja-Bíó sýnir á morgun kl.
6 "Demantaþjófnaðinn", með hinum fræga leikara Tom Mix í
aðalhlutverkinu. Allir sem ekki hafa séð þessa mynd, þurfa að sjá hana nú.
Kl. 8½ annað kvöld
sýnir Nýja-Bíó, hina ágætu mynd "Brosandi land". Aðalhlutverkið
leikur söngvarinn Richard Tauber. Hinn heimskunni Frsnz Lehar stjórnar
hljómsveitinni. .Allir söngelskir menn munu hafa óblandna ánægju af að
heyra og sjá Richard Tauber í þessari mynd.
Siglfirðingur: Bæjarfréttir 29. des. 1934
Ball í Bíó á gamlárskvöld.
Aðgangur kr. 2,00.
Allt sem inn kemur gengur til að kaupa nýtt lækningatæki handa
sjúkrahúsinu.
Þess vegna er þess vænst að
fólk setji það ekki fyrir sig, að aðgangur er dýrari en hér er venja og
fylli húsið.