Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Bíófréttir-auglýsingar Fyrsta talmyndirn ofl. Bíófréttir-auglýsingar Ósannindum hnekkt Svar Thórarensens Bíó - auglýsingar Svar Kristins Qou Vadis Bíó-menningin Reykingar í bíó Ólætin við Nýja Bíó Hljómgæði ofl. Carnegie Hall Kjartan Ó Bjarnason Skemmtanalífið Milli fjalls og fjöru Helgi Sveins ofl.

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bíó-Saga Siglufjarðar: Helgi Sveinsson

Úr Vikublaðinu

17. febrúar 1949

HVAÐ ER Á SEYÐI

Skemmtana og félagslíf hefur  verið allmikið í vetur, þótt skemmtanir hafi oft verið fleiri og  fjölbreyttari heldur en nú.

Kvikmyndasýningar eru með fæsta  móti og einnig opinberir dansleikir. En í þess stað hafa mörg félög,  svo sem átthagafélög og starfsgreinafélög, haldið skemmtanir  sínar.

Gagnfræðaskólanemendur  hafa nú haldið sína árlegu skemmtun, og hefur :þeim tekist prýðilega  að vanda. 

----------------------------------

Ólympíu-kvikmynd  frá St Morits.  (kynning)

Nú næstu daga mun koma hingað til bæjarins, Ári Stefánsson,  sem fór með Íslensku skíðamönnunum á Ólympíuleikana í St.  Morits, veturinn 1948 - og sýna  kvikmynd þá, er hann tók af  leikjunum og dvöl Íslensku skíðamannanna þar syðra.

Ég sem skrifa þessar línur, hef  haft tækifæri til þess að sjá þessa  bráðfallegu litmynd, og vil því  vekja athygli á henni. Siglfirðingar  ættu að nota þetta, tækifæri og sjá  myndina þegar hún verður sýnd.

Myndin sýnir Íslendingana keppa  í svigi, bruni og stökki. Þar sjáum  við Jónas Ásgeirsson, þar sem  hann keppir við þekktustu stökkmenn heimsins; einnig sjáum við  Guðmund Guðmundsson, Magnús  Brynjólfsson, báða frá Akureyri  og Þórir Jónsson frá Reykjavík,  keppa í bruni og svigi við alla  bestu skíðamenn heimsins.

Myndin sýnir einnig hina dásamlegu náttúrufegurð í St. Moritz og  þau ágætu skilyrði sem skíðamenn  búa þar við. Það er of  langt að  lýsa myndinni lið fyrir lið, en ég  vil hvetja alla Siglfirðinga til þess  að sjá þessa skíðamynd, því ég  efast ekki um það, að hver sá,  sem sér hana hefur mikla ánægju  af - og sýnir þeim einnig hvar skíða  menn okkar eru staddir í íþróttinni  á heimsmælikvarða.

Árni Stefánsson mun jafnvel  sýna fleiri skíðamyndir, sem hann  hefur tekið við ýmis tækifæri.

Helgi Sveinsson