Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Bíófréttir-auglýsingar Fyrsta talmyndirn ofl. Bíófréttir-auglýsingar Ósannindum hnekkt Svar Thórarensens Bíó - auglýsingar Svar Kristins Qou Vadis Bíó-menningin Reykingar í bíó Ólætin við Nýja Bíó Hljómgæði ofl. Carnegie Hall Kjartan Ó Bjarnason Skemmtanalífið Milli fjalls og fjöru Helgi Sveins ofl.

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bíó-Saga Siglufjarðar: Reykingar í bíó ofl.

Úr Vikublaðinu

16. júlí 1944

Kvikmyndahúsin 

Við Siglfirðingar erum miklir  menn, og virðist svo, að við getum gert allt, sem okkur dettur í  hug á hvaða tíma sem er. Ein  þeirra framfara, er hér hafa átt  sér stað, er að komið er annað  kvikmyndahús. Erum við Siglfirðingar þar á undan öðrum bæjum, því enginn bær á landinu mun  hafa tvö kvikmyndahús að höfuðborginni undanskyldri, nema Siglufjörður

Að mínu áliti er það framför að kvikmyndahúsin eru tvö,  því eins og allir skilja, munu þau  keppast um að vera hvort öðru  betri, að því er snertir val mynda  og aðbúnað. Eiga bæði einstakir  menn og félög þakkir skilið, sem  að þessu standa. Það munu flestir  sammála um að fara í kvikmyndahús sé einhver ódýrasta skemmtunin, sem völ sé á.

Um myndavalið  og gæði myndanna má sjálfsagt  deila, en hverjum er í sjálfvald  sett, hvort hann sér myndina eða  ekki. En reynsla mín er sú, að  flestar myndir, sem eru annað  en meiningarlaust grín, sýni baráttu hins góða við hið illa. En  okkar er að velja eða hafna, hvort  við förum í bíó eða ekki. Það virðist svo, að hin lakari tegund mynda, og það sem miður er, hafi  skjótari áhrif til eftirbreytni heldur en þær betri.

Margir voru fljótir að læra af setuliðinu þann ósóma að reykja meðan á sýningu  stóð, einkum unglingar. En reykingar í kvikmyndasal eru algerlega óþolandi. Vakti það því ánægju mína er ég frétti, að Siglufjarðarbíó ætlaði að reyna að  stöðva þennan reykingafaraldur  í sýningarsölum sínum og fannst  mér það framför. Eitt sinn var  letrað á veggi kvikmyndahússins  við Aðalgötu, að reykingar væru  bannaðar. En nú er búið að mála  yfir það. Er það framför?! !

Einhverju sinni var það sagt, að  hættulegt gæti verið að reykja í  kvikmyndahúsum og að fara með  óbirgðan eld, þar sem fólk væri  samankomið, en nú er víst engin  hætta á því lengur. Það er víst  framför ! !

Reykingar í kvikmyndahúsum  verða að hverfa, því að þær eru  óþolandi og hættulegar, auk íkveikjuhættunnar á maður á  hættu að eyðileggja föt sín og  ekki sæmir sjálfstæðu fólki slíkt  ósjálfstæði að geta ekki haft hemil  á nautnum sínum fáar mínútur.

 

Eigendur kvikmyndahúsanna vilja  ekki þessar reykingar, en þeir eru  ekki í meirihluta í áhorfendahóp.  Það erum við, borgarar þessa bæjar og við getum ekki heimtað allt  af öðrum. Það erum við sjálfir,  sem getum kippt þessu í lag.

Ekki  getum við heimtað það af eigendum "kvikmyndahúsanna, að við  hegðum okkur eins og siðað fólk,  eða hvað finnst ykkur, Siglfirðingar góðir? Þeir, sem fylgst hafa  með í þessum efnum, vita, að það  eru aðallega unglingar, sem eru  valdir að þessum reykingum, því  flestum ef ekki öllum fullorðnum  mun vera hægt að stilla sig meðan  á sýningu stendur. Ógleymt er  reykingahléið, sem eingöngu er  haft fyrir þá, sem ekki þola við  allan tímann án þess að reykja,  svo fyrir öllu er nú séð.

- Jæja,  ég brá mér einn góðan veðurdag  á barnasýningu í Siglufjarðarbíó,  alveg óbrynvarinn og átti einskis  ills von, en von bráðar fóru að  koma blossar og eldglæringar eftirfylgt af reykjarsvælu. Svo var  nú á barnasýningunni.

Nei, Siglfirðingar góðir. Það getur ekki gengið, að reykt sé í, bíósýningum og munu flestir mér um  það sammála. Því segi ég, og ég  veit ég mæli fyrir munn flestra,  borgara þessa bæjar.

Bíó-eigendur stöðvið reykingarnar strax.

 Þ. J