Siglfirðingur 10. ágúst 1935: (1/3 af síðu)
==
NÝJA-BÍÓ
==
Sýnir sunnudagskvöld 11. ágúst
kl. 4½
Svefnlausar nætur.
Fjörugur gamanleikur í
10 - þáttum. - Aðalhlutverkin leika:
STANLEY LUPINO og POLLY WALKER.
Í þessari
mynd eru sungin fjörug lög og margar
skrautlegar sýningar sjást. Efni myndarinnar er um unga
miljónamæringsdóttur og fátækan blaðamann, sem komast í svo mikla klípu,
að .þau neyðast til að lýsa því yfir að þau séu nýgift, þótt þau vitanlega
séu ógift. "Tengdaforeldrarnir" koma að alt í einu og fagna "tengdasyninum".
Komast nú ungu hjónaleysin í mestu vandræði og er oft hægt að fá
tækifæri til eð skellihlæja.
==============================
kl.
6½:
Við sem vinnum eldhússtörfin.
Tal- og hljómmynd í 10 þáttum tekin eftir sögu SIGRID BOO
Aðalhlutverkin leika:
TUTTA BERNTZEN-ROLF, BENGT DJURBERG, KARIN SVANSTRÖM
Breder verksmiðjustjóri hefir átt tal við ungan hugvitsmann,
sem vill salja honum einkarétt á nýju bifhjóli, sem hann hefir fundið
upp, en þegar Breder vill ekki kaupa, huggar ungi maðurinn hann með því,
að hans eigin bifhjól "Eldingin" skuli bíða lægri hlut fyrir hinu nýja í
næsta kappakstri. Bredar er í vondu skapi, og það, gengur út yfir Helgu dóttur
hans, sem hann svíkur um Parísarferð, sem hann hefði áður lofað henni. Til að
hugga sig, fer hún til Jörgens vinar síns. sem er einnig. trúnaðarmaður
hennar, og lendir í heilum hóp af ungu fólki á baðstað. Þar hefst
kappræða um ungar stúlkur nú á dögum, og Jörgen og fleiri halda, fram,
að nútímastúlkan kunni ekki annað en dansa og leika sér: "Ég skal gefa
þér demantshring ef þú vilt vinna hjá öðrum í hálft ár og lifa af því; sem
þú vinnur þér inn sjálf" -Helga slær til og fer brátt í vist og eftir aðhafa
upplifað ýmislegt skrítið vinnur hún veðmálið. En; hvað hún upplifði, er best
að fá að vita með því að sjá myndina. Hún er nú sýnd í NÝJA BÍÓ.
Sýnd í allra síðasta sinn
===========================
kl. 8½
Syndaselur
kvennaskólans
Tal- og hljóðmynd í 10 þáttum. - Aðalhlutverkið leikur: ANNY
ONDRA.
Hér er á ferðinni skemmtileg og fjörug gamanmynd, og þar sem
Anny Ondra leikur aðalhlutverkið, er fengin trygging fyrir því að myndin
er bæði hlægileg og fjörug. Anny Ondra leikur unga lífsglaða. stúlku,
sem send er af foreldrum sínum á kvennaskóla. Þar kemur hún öllu í
uppnám og reynist nokkuð erfitt fyrir kennara hennar að tjónka við hana.
============================
kl.10¼
Veðmál um
lífið
Afar spennandi "wild West mynd, í 10 þáttum.- Aðalhlutverkin
leika: TOM KEENE og HELEN FOSTER.
Monty býr í afskektum bæ ásamt Jude gamla. Leiðist honum
einveran og heldur til Dan Hurnis, en þar eru margir Cowboys og fjör og
líf. Verða þeir Monty og Rance ástfangnir í sömu stúlkunni og reynir
Rance að losna við keppinaut sinn með því að fá hann til að fara á bak á
óhemju, sem áður er búinn að drepa tvo menn. En margt fer öðruvísi en
til er ætlast. – Afar spennandi mynd.