Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Bíófréttir-auglýsingar Fyrsta talmyndirn ofl. Bíófréttir-auglýsingar Ósannindum hnekkt Svar Thórarensens Bíó - auglýsingar Svar Kristins Qou Vadis Bíó-menningin Reykingar í bíó Ólætin við Nýja Bíó Hljómgæði ofl. Carnegie Hall Kjartan Ó Bjarnason Skemmtanalífið Milli fjalls og fjöru Helgi Sveins ofl.

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

17. júlí 1948

Skemmtanalífið

“Gestur” hefir skrifað blaðinu um skemmtanalífið í bænum. Svo sem pistill sá er hér fer á eftir, ber með sér er hann ekki ánægður með allt í því tilliti.

Ekki leggur blaðið dóm á það hve mikið er rétt í bréfi hans en telur þó rétt að birta. það, ef kvartanirnar gætu orðið til einhverra úrbóta. Hinsvegar skal það tekið fram, að viðkomandi aðiljum er heimilt rúm hér í dálkinum, ef þeim finnst ástæða til einhverra athugasemda.

Kvikmyndahúsin.

"Allir" Siglfirðingar og margir utanbæjarmenn kannast við kvikmyndahús þau sem Siglfirðingar verða að sætta sig við. Siglufjarðarbíó er að sumu leyti gott, þar eru öll sæti vel númeruð, bæði uppi og niðri.

 Einnig er þar sæmilegt hreinlæti. að undanteknu salenni, vart er hægt að segja, að sé til. En sýningartækin eru með öllu óþolandi og ég er hissa á þeirri bíræfni að bjóða fólki ennþá að horfa á myndir, sem nokkur söngur eða hljómlist er í, því að lítið heyrist þá annað en truflanir.

Ættu hlutadeigendur þegar að gefa skýringu á því, hversvegna þeir enn þann dag í dag nota þessi tæki.

Nýja Bíó hefur hinsvegar fyrsta flokks sýningartæki, en hreinlæti og allur umgangur þar, er ófullnægjandi. Ennfremur væri æskilegt, að sætin niðri væru betur merkt.

Gestur