Norræn skíðaganga | Soðmjölsverksmiðja | Strákarnir sem týndust | Hafís fyrir norðan | Drengur í hættu | Bæjarskrifstofan | Stanslaus löndun | Síld á Sigló | Þjóðhátíð og síld | Síldina vantar | Illa gengur að dæla | Siglfirðingar gleðjast | Þar sem sólin neitar .. | Tunnuflutningar | Halla Haralds | Tvær fréttir

>>>>>>>>>>> Drengur í hættu

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Drengur í lífsháska í klettum

SIGLUFIRÐI, 9. mars. -

Ísjakar lóna hér fyrir utan og hefur fólk gengið út að svokölluðu Gati, sem er holan þar sem  Strákavegurinn á að fara í gegn, og horft á ísinn.

Eftir síðdegiskaffið ætlaði 15-16 ára gamall drengur  hér úr bænum, Guðlaugur Hilmarsson, að fá sér göngu þarna út eftir í indælu veðri og hlýju.  Gekk hann út fyrir Gat en fór heldur langt, því hann labbaði sig fastan, var kominn í sjálfheldu í  klettum áður en hann gætti að sér, en snjór er í klettunum og hált. Guðlaugur hafði vit á að hreyfa sig ekki, í von um að geta gert vart við sig.  

Bátur sem var nýbúinn að leggja rauðmaganetin, var á heimleið og fór þarna hjá.

Heyrði  sjómaðurinn, Magnús Guðjónsson, fyrrverandi. skipstjóri, einhver hróp, þó vélin væri í gangi.  Þegar hann gætti að, sá hann mann uppi í klettunum sem veifaði til hans. Hann hélt í fyrstu að hann væri slasaður  þarna og gaf honum merki um að hann hefði séð hann.

Síðan setti Magnús á fulla ferð í höfn.  Þegar þangað kom gerði hann lögreglunni aðvart. Klukkan var 8 og komið myrkur, þegar lögreglan kallaði út hjálparsveitina, sem hélt á staðinn  og áður en klukkutími var liðinn hafði hún náð piltinum með hjálp kaðla.

Margir vaskir drengir  eru í liðinu og snarráðir. Guðlaugur hefur líklega verið búinn að sitja fastur í klettunum í 2 tíma, þegar hjálpin barst.  Honum varð ekki meint af.

 Steingrímur