Norræn skíðaganga | Soðmjölsverksmiðja | Strákarnir sem týndust | Hafís fyrir norðan | Drengur í hættu | Bæjarskrifstofan | Stanslaus löndun | Síld á Sigló | Þjóðhátíð og síld | Síldina vantar | Illa gengur að dæla | Siglfirðingar gleðjast | Þar sem sólin neitar .. | Tunnuflutningar | Halla Haralds | Tvær fréttir

>>>>>>>>>>> Síldina vantar

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fimmtudagur 22. júlí 1965  Ljósmynd og texti: Steingrímur

ÞAÐ EITT SKYGGIR Á, AÐ SÍLDINA VANTAR

Hringur SI 34 kemur inn með 50-60 lestir af ufsa. 

 

Siglufirði, 18. júlí.

 

EINMUNA tíð hefur verið hér á Siglufirði undanfarnar vikur, bæði til sjós og lands. Sjaldan eða aldrei hefur hitinn farið niður fyrir 10 stig, oftast 12-16 stig, bæði daga og nætur, og heitara þegar sólin skín.
Börn og fullorðnir ganga um léttklæddir.

Það eitt skyggir á að síldina vantar. Síldina, sem hefur byggt upp fjörðinn. Síldina, sem hefur byggt upp landið. Síldina, sem við bölvum og blessum á víxl.
 

Hér eru yfir 20 söltunarstöðvar, sem bíða með tómar tunnur og „atvinnulaust" fólk á kauptryggingu eftir því að silfur hafsins renni um greipar þess og fylli tunnurnar, og pyngjur fólksins peningum.
 

Þó hefur nokkuð stór hópur 40-60 manns, haft nóg að gera að undanförnu, oft langt fram á kvöld alla daga vikunnar, en það er starfsfólk hraðfrystihúss SR. Það er beinlínis góða veðrinu að þakka og mjög góðri ufsaveiði hér í næsta nágrenni, oft ekki nema 15-60 mínútna stím frá bryggju.
 

Þar á drýgstan þátt í m.b. Hringur SI 34, eini Siglfirski "stóri báturinn", sem leggur upp afla sinn á Siglufirði allt árið um kring, og raunverulega eini báturinn, sem við Siglfirðingar finnum að við eigum og þykir vænt um. Því þó skráðir séu hér nokkrir stórir bátar, bæði nýir og gamlir, keyptir með beinni og óbeinni aðstoð okkar Siglfirðinga, þá virðast útgerðarmenn þeirra gleyma því í hvaða tilgangi þeir fengu aðstoð bæjarins til að kaupa skipin.
 

En svo við höld um áfram með ufsann, þá hefur veiðst óvenju vel af honum, bæði af trillunum og Hringur SI 34.
 

Aflasælasta trillan. er Dúfan, skipstjóri Páll Kristjánsson, en hann hefur búið sér til litla hringnót, og oft komið með það hlaðinn bát að ekki hefur munað nema nokkrum sentímetrum að upp í hann flæði. Hringur, skipstjóri Jón Sveinsson, hefur aflað um 400 tonn af ufsa á síðustu 4-5 vikum, og í dag kom hann með 15 tonn inn og núna í kvöld um kl. 20, var hann að kalla í land, og sagðist vera með 50-60 tonn á hliðinni í nótinni við fjarðarmynnið, 30-40 mínútna stím inn.
 

Talsvert hefur líka aflast af flatfiski, en einn bátur stundar snurvoð og leggur upp hjá Ísafold s.f., og er það Andvari sem mest leggur þar á land.
 

-------  SK