Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Óánægja með Stórtjón, af veðri Einokun útvarps Leikur í snjónum Þið sjáið sjálfir um.. Söngur Vísir Bland frétta Ný löndunarbryggja Höfnin dýpkuð Pistill & fréttir Síld og ufsi Svartur fáni Þeir sem hafa... Með ungu fólki.. Haförninn kemur Strákagöng Það er komið gat Í gegn um göngin Skipbrotsmannaskýli Slys í göngunum Stutt rabb við .. Smáfréttir Síld á Siglufirði Nýtt sjúkrahús

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bland frétta + dagsetninga 1966

Fyrsta síldin til Siglufjarðar

Siglufirði 16. júní.

V.B. PÉTUR Sigurðsson frá Reykjavík kom með 130 tonn af síld til Síldarverksmiðju  ríkisins á Siglufirði laust eftir miðætti. Var þetta fyrsta síldin sem barst á land á Siglufirði.  og jafnframt var þetta í fyrsta sinn, sem landað er við nýju löndunarbryggjuna þar, sem  er mikið mannvirki. Svo og var þetta í fyrsta skipti, sem síld er landað með nýju  löndunartækjunum, sem komið hefur verið upp á bryggjunni. Síðar um daginn komu svo Margrét með 196  tonn og Siglfirðingur með 250 tonn.                             SK

=========================================

Sundhöllin opnuð

Siglufirði, 5.júlí.

SUNDHÖLL Siglufjarðar var loksins opnuð almenningi í  dag, það er að segja kvenfólki í dag og karlmönnum á morgun. Og geta þá Siglfirðingar  væntanlega farið að synda 200 metrana, en hér hefur enginn synt þá í þessari lotu enn  sem komið er. Einhverjar breytingar hafa átt sér stað í sundhöllinni í vor og sumar og ekki er þeim lokið  enn.

 SK.