Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Óánægja með Stórtjón, af veðri Einokun útvarps Leikur í snjónum Þið sjáið sjálfir um.. Söngur Vísir Bland frétta Ný löndunarbryggja Höfnin dýpkuð Pistill & fréttir Síld og ufsi Svartur fáni Þeir sem hafa... Með ungu fólki.. Haförninn kemur Strákagöng Það er komið gat Í gegn um göngin Skipbrotsmannaskýli Slys í göngunum Stutt rabb við .. Smáfréttir Síld á Siglufirði Nýtt sjúkrahús

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

í júlímánuði 1966 Ljósmynd og texti: Steingrímur

Í síld á Siglufirði

SIGLUFIRÐI, 12. júlí. Annað nú, - en áður var. Í dag kom m/s Sigurborgin, Siglufirði með  fyrstu söltunarsíldina til Siglufjarðar, eða um 130 tonn, síldin var í meðalagi stór, en illa farin,  enda ekki á betra von, þar sem síldin var um 35-40 tíma gömul eftir siglingu alla leið frá Jan Mayen miðum.

En reynt var að salta sem „hægt" var, en nánast var þetta bræðslusíld, en ekki  söltunarsíld. Það hefði að minnsta kosti verið álitinn eitthvað skrítinn síldarsaltandi, sem reynt  hefði að salta svona síld sem þessa, fyrir svo sem 2.-3 árum, en nú - ja, hvar endar þetta?

En það eitt að sjá síld í kössunum, þó léleg væri, kom blóðinu, á hreyfingu í líkömum  síldarfólksins og hausarnir fuku af síldunum undan beittum hnífum síldarstúlknanna, þótt mikill  tími færi í að kasta og velja sæmi lega síld, undir hnífinn og í tunnuna.

Þegar saltað hafði verið, sem fært þótt upp úr m/s Sigurborgu hjá söltunarstöð Þráins  Sigurðssonar „Ísafold" þá landaði Sigurborg afganginum, eða 96 tonnum hjá Síldarverksmiðjum  ríkisins. -- SK.

Siglfirðingar horfa á ufsaveiðina

Siglufirði, 5, júlí.-

       TALSVERÐ ufsaveiði hefur verið hér fyrir norðan nú síðustu daga.  Stóru bátarnir, Hringur og Tjaldur, hafa fengið afla allt upp í 35 - 40 tonn og trillurnar allt Upp í  7 tonn. Góður, hlutur – það, á tvo menn. Nú sem stendur, þriðjudags- kvöld 5. júlí k1. 21.30 horfi ég út um eldhúsgluggann á íbúð minni við Hvanneyrarbraut og sé m.b.

Hring SI 34 sigla á fullri ferð og kastar ufsanót sinni hér úti á  miðjum firði. -- 20 mínútum siðar sé ég tvo, “kajaka"og róðrarmenn  þeirra fylgjast með  Hring, draga inn nót sína.- og stuttu síðar er Hringur byrjaður að háfa. 

 

Siglufirði, 6. júlí. - Hringur landaði. _ 12 tonnum af  ufsa í nótt og hélt strax út  á fjörðinn aftur til veiða og er hann þar nú ásamt nokkrum trillubátum

--SK