Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Óánægja með Stórtjón, af veðri Einokun útvarps Leikur í snjónum Þið sjáið sjálfir um.. Söngur Vísir Bland frétta Ný löndunarbryggja Höfnin dýpkuð Pistill & fréttir Síld og ufsi Svartur fáni Þeir sem hafa... Með ungu fólki.. Haförninn kemur Strákagöng Það er komið gat Í gegn um göngin Skipbrotsmannaskýli Slys í göngunum Stutt rabb við .. Smáfréttir Síld á Siglufirði Nýtt sjúkrahús

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Laugardagur 17. september 1966 

Fréttin: Steingrímur Kristinsson

Göngin um Stráka:

"Það er komið gat"

Í FRAMHALDI af því sem ég skýrði frá í frétt, í blaðinu í gær dróst talsvert mikið að hægt  væri að byrja að bora og sprengja í Strákagöngin, vegna þess hve jarðlögin eru slæm og af  þeim stafar hrunhætta, t.d. skeði það í gær að starfsmenn voru komnir inn í enda og féll þá  niður að baki þeim stærðar bjarg, fleiri tonn að þyngd. Þetta er til marks um hve hættuleg  aðstaða er þarna í göngunum.

Í morgunsárið fékk ég að vita að von á væri á sprengingu á næstu stundu. Var ég kominn úteftir um kl. 6,30, en fékk samt ekki leyfi til að fara inn í göngin, en beið átekta fyrir utan. 

Klukkan nákvæmlega 8.08 kvað við stór sprenging og rétt á eftir tvær minni.

Leið nú talsverð  stund, en þá fóru að birtast glaðir og ánægðir verkamenn, sem komu innan úr göngunum.

 

Þeir  hrópuðu hástöfum „Það er komið gat." Ég innti þá nánar eftir þessu og sögðu þeir mér þá að komið væri gat, sem þeir gátu hæglega skriðið í gegnum, sem þeir og allir gerðu.

 

Verkstjórar tjáðu mér að bergið væri mjög hættulegt þarna, en gott op hefði myndast, sem  bæði birta og hreint loft kæmi inn um og væri hægt að skríða í gegn.

Þrátt fyrir að vegalengd hefði skeikað í útreikningum verkfræðinganna um 4-6 m. þá  hittu þeir svo nákvæmlega mark í síðustu sprengingunni að ekki hefði betur til tekst þó  að sprengingin hefði verið gerð vestanmegin frá.

                                                                                                                     Steingrímur.