Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Óánægja með Stórtjón, af veðri Einokun útvarps Leikur í snjónum Þið sjáið sjálfir um.. Söngur Vísir Bland frétta Ný löndunarbryggja Höfnin dýpkuð Pistill & fréttir Síld og ufsi Svartur fáni Þeir sem hafa... Með ungu fólki.. Haförninn kemur Strákagöng Það er komið gat Í gegn um göngin Skipbrotsmannaskýli Slys í göngunum Stutt rabb við .. Smáfréttir Síld á Siglufirði Nýtt sjúkrahús

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Laugardagur 5. febrúar 1966. Ljósmyndir og texti: Mbl. & Steingrímur

STÓRTJÓN Í FÁRVIÐRI Á SIGLUFIRÐI

MYNDIRNAR hér á síðunni voru teknar af Steingrími Kristinssyni á Siglufirði eftir óveðrið á  dögunum en þær bárust blaðinu ekki fyrr en í gær vegna samgöngu- erfiðleika.

Í bréfi, sem Steingrímur sendi með myndunum, segir m.a.:  „Í stórviðrinu, sem gekk yfir allt Norðurland varð mikið tjón á mannvirkjum á Siglufirði. Er  lauslega áætlað, að það nemi 1-2 milljónum króna, en mest varð tjónið hjá  Síldarverksmiðjum ríkisins. Blikkplötur og hurðir  tættust af hinu stóra mjölhúsi SR-46,  stafn í verksmiðjuhúsi  SRP lét undan  veðurofsanum.og hallast inn á við, þakplötur

 

 fuku af sama húsi. Tveir þurrk- reykháfar fuku, af SRP og einn af SR-46. þá fuku þakplötur og hurðir af beinahúsi SRP og þakplötur og gluggar i heilu lagi af SRN.  Þá brotnuðu nokkur hundruð gluggarúður hjá  verksmiðjunum. þá varð einnig  nokkurt tjón á hafnarmannvirkjum  SR,  enda mikill sjógangur.   Annars staðar í bænum varð einnig mikið tjón, þakplötur og þakhlutar fuku af nokkrum  húsum, m.a. allar plötur af nýju húsi þannig að naglarnir einir voru eftir, naglahausarnir gáfu sig vegna verksmiðjugalla.

 

Verksmiðjuhús SRP. Norðurgafl hússins hefur gengið inn undan veðurofsanum og þakplötur fokið.

Gluggarúður brotnuðu í hundraðatali, útvarpsloftnet og rafmagnslínur slitnuðu. Þá sukku bátar í höfninni og á landi fuku bátar um koll í naustum sínum.

Mjög miklum snjó kyngdi niður fyrsta óveðursdaginn og þurftu margir að standa í  snjómokstri við hús sín.

 

 

 

 

 

 

Á bak við þessa skafla er Eyrarbúðin og Föndurbúðin

 

 

 

Hérna er Sparisjóður Siglufjarðar til húsa. Örin bendir á dyrnar, en grafa þurfti göng til að komast að þeim.

 

 

 

 

Þetta eru ekki brunarústir, heldur fauk hluti þaksins