Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Óánægja með Stórtjón, af veðri Einokun útvarps Leikur í snjónum Þið sjáið sjálfir um.. Söngur Vísir Bland frétta Ný löndunarbryggja Höfnin dýpkuð Pistill & fréttir Síld og ufsi Svartur fáni Þeir sem hafa... Með ungu fólki.. Haförninn kemur Strákagöng Það er komið gat Í gegn um göngin Skipbrotsmannaskýli Slys í göngunum Stutt rabb við .. Smáfréttir Síld á Siglufirði Nýtt sjúkrahús

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Fimmtudagur 3. mars 1966

Ríkisútvarpið og Siglfirðingar

UNDANFARIN ár hafa hlustunarskilyrði Siglfirðinga á dagskrárefni Ríkisútvarpsins verið mjög  slæm og hafa þeir heyrt allskonar óvelkomna hljóma í stað óbrenglaðrar dagskrár.

 Þetta ástand  hefur farið hríð-versnandi og stafar þetta mikið frá innlendri lóranstöð með undirspili erlendra  útvarpsstöðva.

Oft kemur það fyrir að Siglfirðingar þurfa hreinlega að slökkva á viðtækjum sínum, ekkí fyrir  það að dagskráin sé léleg heldur vegna þess, að þeir heyra alls ekki, hvorki í  langbylgju útsendingunni eða sendistöð þeirri, sem sett var hér upp sl. vetur af Landsíma Íslands,  eða þá þeir njóta þeirra ekki vegna lélegra tóngæða. Það má segja að vandræðaástand sé  ríkjandi hér í Siglufirði vegna hlustunarskilyrða þeirra, sem okkur eru skömmtuð.

Varla kemur fyrir sú klukkustund á útsendingatíma Ríkisútvarpsins að við heyrum ekki raddir  þula, sem halda mætti vegna útsendingaaskilyrðanna, að væru ölvaðir og eins hitt, að þegar  leiknar eru hljómplötur, þá virðist sem útvarpið sendi frá sér eingöngu „electroniska"-músík,  svo maður minnist nú ekki á alla hina mörgu. sem flytja þar ýmsa talaða þætti.

Ef flytjendur og höfundar ættu þess kost að hlusta á flutning verka sinna, eins og við heyrum  þau, þá mætti ætla að þeir sem látnir eru sneru sér við í gröfum sínum, en hinir kæra til STEFs  vegna þessara misþyrminga á verkum þeirra.

Ekki getur útvarpsráð, útvarpsstjóri -eða Landsíminn afsakað sig með því, að þeim sé ekki  kunnugt um ástand þessara mála hér því á árunum 1964, 1965 og 1966 hafa kvartanir 'bæði  munnlegar og skriflegar borist til þessara aðila, og tvívegis hafa þeim verið sendar  mótmælaundir skriftir 300--400 útvarpseigenda.

Landsíminn sér um alla „tæknilega" starfsemi á dreifingu útvarpsefnis, eins og hér áður greinir,  og fær að sjálfsögðu sín ómakslaun fyrir, en gerir Landsíminn þessu verkefni sínu fullnægjandi  skil? Hvað Siglufjörð snertir ætla ég að fullyrða að svo er ekki. En hversvegna er þetta svona,  borga Siglfirðingar ekki afnotagjöld sín að fullu til Ríkisútvarpsins svo þess vegna sé Landsímanum uppálagt að vanda ekki betur til verka sinna hér?

Ég er að vísu bara leikmaður hvað radíótækni snertir, en samt gæti maður ætlað að þeir  ábyrgu aðilar, sem sjá eiga um endurvarp útvarpsins út um landsbyggðina, væru ábyrgðarlausir  trassar eða bara alts ekki færir um að vinna þau verk, sem þeim er trúað fyrir.

Mér telst til að ekki muni vera nema 270 km loftlína milli Reykjavikur og Siglufjarðar, er þá  vegna þessarar lengdar möguleiki fyrir því, að 100 kw sendir, sem staðsettur er á  Vatnsendahæð drægi ekki betur þessa vegalengd, en raun ber vitni um Eða getur það verið að  þessi 100 kw sendir, sendi ekki út nema með hluta af þeirri orku, sem hann er upphaflega  byggður fyrir. 

Ástæðan fyrir þessari spurningu minni er sú, að þegar þessi nefndi sendir tók fyrst  til starfa, þá sýndi græna ljósið á viðtæki mínu mjög góðan styrk, en nokkru síðar bilaði  sendirinn og eftir að gert hafði verið við hann, þá sýndi græna ljósið, og sýnir enn, mun minni  styrk en fyrst. É:g vil taka það fram að fleiri en ég hafa veitt þessu athygli. Einnig vil ég geta  þess, að hinn 27. janúar sl., er verið var að leika síðasta lagið fyrir hádegisfréttir, datt skyndilega niður útsending frá sendinum á Vatnsendahæð, en 20 kw Eiðasendirinn, sem  sendir út á sömu bylgjulengd hélt áfram sendingu sinni með sæmilegum styrk, en með mjög  miklum sveiflum þannig, að græna ljósið var á sífelldu iði. Eftir stutta þögn afsakaði 'þulurinn  þessa truflun á útsendingu, sem stafaði frá rafmagnstruflun á sendinum á Vatnsendahæð, en  raunar hafði þess ekki orðið vart á Austur- og Norðurlandi svo og þar sem hlustað væri á  FM senda. Svo mörg voru þau orð, þau gáfu mér til kynna ástæðuna fyrir því, hversvegna raddir þula og annarra flytjenda útvarpsefnis kemur hér fram í viðtækjum okkar svo óeðlilega, sem  segulbandsupptökur þær sýna, sem sendar voru útvarpsráði héðan, nú fyrir stuttu.

Það rifjaðist  jafnframt upp fyrir mér grein, sem ég las í dönsku radíóblaði fyrir um það bil 10 árum, þess  efnis, að danskir útvarpsmenn höfðu gert ti1raunir með að senda útvarpsefni i með tveimur  sendum, sem sendu' út á sömu, bylgjulengd. Hinir dönsku útvarpsmenn fengu fljótt vitneskju um  það, að þau viðtæki sem staðsett voru miðsvæðis hinna tveggja senda, urðu fyrir truflunum  svipuðum þeim sem Siglfirðingar hafa orðið fyrir síðan að Eiðasendirinn var tekinn í notkun.  Dönsku útvarpsmennirnir hættu þessum tilraunum. Nú um 10 árum seinna ætla svo íslenskir  útvarpsmenn að leika sama leikinn og halda þannig áfram fyrri vitleysunni, sem danirnir hættu  við.

Útvarpið og Landsíminn brugðu furðu fljótt við beiðnum okkar, en hlustunarskilyrðin og gæði  sendingar var ekki nálægt því að vera boðleg, og vægast sagt kák eitt, enda ekki að undra  þegar i tekið er tillit til hvernig umrædd i stöð og allur frágangur leit út. Þessi stöð var um 15-18  ára gömul bátatalstöð, sem á sínum tíma var smíðuð af Landsímanum eingöngu fyrir skip og  báta, en ég efast um að nokkur skip stjóri telji hana boðlega um borð í skipi sínu í dag, því íslenskir sjómenn eru kröfuharðir og  vilja fylgjast með tíma og tækni, ekki síður á sviði radíóvísinda en veiðarfæra og skipa. En Landsíminn og Útvarpið, er fylgst með tíma og tækni hjá þeim? Varla fullkomlega, og er  þessi gamla bátatalstöð gleggsta dæmið.

Mér þykir ótrúlegt að Landsíminn hafi hér valið  ófaglærða menn til að annast uppsetningu bátatalstöðvarinnar, en samt bendir allur frágangur til  að svo hafi verið. Tóngæði þessarar stöðvar var svipuð og talað væri í trekt eða öskrað ofan í  tóma tunnu enda fékk stöð þessi fljótt nafnið „Tunnustöðin". Ekki var einu sinni hægt að hlusta á  háværa bítlamúsík hvað þá tónverk. Þetta voru úrbæturnar.

Þrátt fyrir þótt stöðin væri ekki betri en þetta var nokkuð hlustað á hana og þá aðallega   gamalt fólk, sem lítið hlustaði á annað en talað orð og gerði jafnvel ekki kröfu til tóngæða. Og  svo voru líka hlustunargæði 100 kw sendisins oft verri en „Tunnustöðvarinnar".

Síðastliðið sumar var tunnu- stöðinni lokað að ósk síldarleitarstöðvarinnar hér, því stöðin  truflaði svo starfsemi síldarleitarinnar, þar sem „tunnustöðin sendir út á (heyrist) 8-10 mismunandi stöðum, og því ekki óeðlilegt frá leikmannssjónarmiði  séð, að hún hafi því ekki komist hjá því að vera allsstaðar að flækjast (á bylgjunum) fyrir  síldarleitinni. Lokun stöðvarinnar þá var þó nokkuð viðunandi .því betur heyrist í  Vatnsendasendinum þegar bjart er á sumrin, en þegar 1íða tók á haustið og dimma tók á  kvöldin, þá fóru háværar raddir að heyrast og aftur var beðið um nýja endurvarpsstöð. Loksins,  rétt fyrir jólin 1965, heyrðist í endurvarpsstöð, sem staðsett var á sama stað og fyrri stöðin var.  Það hýrnaði yfir Siglfirðingum því það virtist vera kominn allt að því viðunandi hljómur frá  endurvarpsstöð, staðsettri hér. En það stóð ekki lengi yfir, en um ástæðuna vil ég ekki fullyrða  þó ýmislegt hafi ég heyrt, en staðreyndin er sú. að fyrsta daginn var endur varp- stöðin allt að því viðunandi, þó alls ekki fullnægjandi, en svo fóru að heyrast annarlegir  tónar frá henni, ekki ósvipað og verið væri að stilla hana, og fór hún dag versnandi og að lokum  var svo komið að þessi nýja stöð var nú og er, þegar kveikt er á henni, verri en gamla  „tunnustöðin", því fyrir utan gjallandann í henni heyrir maður sterka smelli, sem ég tel að stafi frá  símanum, en útvarpsefni er flutt eftir „langlínu". Einnig er stöðugt væl og sterkt magnarabrúm,  og hefur komið fyrir að hlustendur hafi heyrt óm af langlínusamtölum, og sumir jafnvel talið sig  þekkja raddir vissra manna í viðtækjum sínum. Ég þykist vita um ástæðuna fyrir þessum  aukahljóðum, en verkfræðingar Landsíman: vita það líklega betur. Útvarpið og Landsíminn brugðu furðu fljótt við beiðnum okkar, en hlustunarskilyrðin og gæði  sendingar var ekki nálægt því að vera boðleg, og vægast sagt kák eitt, enda ekki að undra  þegar i tekið er tillit til hvernig umrædd i stöð og allur frágangur leit út. Þessi stöð var um 15-18  ára gömul bátatalstöð, sem á sínum tíma var smíðuð af Landsímanum Það er létt fyrir ríkisútvarpið  að kenna Landsímanum um allar þessar ófarir, en samt má segja að ríkisútvarpið eigi mesta sökina, þó ekki væri fyrir annað en að hafa ekki sinn eigin  verkfræðing til að hafa eftirlit með aðgerðum Landsímans um tæknileg atriði við  hlustendaþjónustuna. eða þá

hreinlega að sjá sjálfir um sín útvarpsmál og látið í staðinn  Landsímann sjá um sín eigin málefni. Annars væri þjóðráð fyrir útvarpsráð, að kynna  sér hvernig frændur okkar Norðmenn fara að því að dreifa útvarpsefni sínu til  landsmanna. Þeir líta ekki við því að setja upp lang- eða miðbylgjustöðvar heldur láta  um 30 FM-senda dreifa útvarpsefninu og útvarpið sér um þau verkefni sjálft.Nú í dag standa þessi útvarpsmál okkar Siglfirðinga þannig, að útvarpsráð hefur  ennþá ekki svarað beiðni þeirra 300-400 útvarpseigenda, sem óskuðu eftir því að sett  yrði hér upp fullkomin miðbylgju- og/eða FM-sendistöð, en þessari beiðni okkar voru  þeir beðnir• að svara fyrir mánaðamótin janúar/febrúar sl. Nú er hér þegar hafin  undirbúningur um stofnun útvarpsnotendafélags, sem svo mun taka ákvörðun um  neitun á greiðslum afnotagjalda til ríkisútvarpsins, vegna þeirra gjörómögulegu  hlustunarskilyrða ,sem við höfum átt við að búa sl. 2 ár. Að vísu hefur ríkisútvarpið  heimild til lögtaksbeiðni á vangoldnum afnotagjöldum útvarpseigenda, en eigi sú heimild  að geta staðist, þá finnst manni að ríkisútvarpið þurfi að skila til hlustenda sinna  efnaflutningi sínum þannig, að efnisflytjendur hljómi ekki í tækjum okkar sem ýmist  ofurölvaðir menn eða þá mjög timbraðir.

Hvernig svo sem hér kann að fara, að neitað verði greiðslu á afnotagjöldum og  Útvarpið láti hér samt sem áður koma til lögtaksheimildar sinnár þá er ekki ómögulegt  að gagnkrafa komi frá hinu þá nýstofnaða félagi, og mun þá verða leitað álits  dómstólanna varðandi það mál, enda er hér gnægð sönnunargagna á staðnum um gæði  þeirra hlustunarskilyrða, sem við eigum við að búa.

Steingrímur Kristinsson,

 

 

 

.