Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Óánægja með Stórtjón, af veðri Einokun útvarps Leikur í snjónum Þið sjáið sjálfir um.. Söngur Vísir Bland frétta Ný löndunarbryggja Höfnin dýpkuð Pistill & fréttir Síld og ufsi Svartur fáni Þeir sem hafa... Með ungu fólki.. Haförninn kemur Strákagöng Það er komið gat Í gegn um göngin Skipbrotsmannaskýli Slys í göngunum Stutt rabb við .. Smáfréttir Síld á Siglufirði Nýtt sjúkrahús

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka
Fleiri Myndir

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Föstudaginn 12 ágúst 1966.

Pistillinn: Steingrímur Blöndal.  Ljósmyndir; Steingrímur Kristinsson

Með ungu fólki á Siglufirði

Rætt um starf F.U.S. Njarðar

Á Siglufirði hafa ungir sjálfstæðismenn tekið upp þá nýbreytni í félagsstörfum sínum, að  gangast fyrir danskvöldi í Sjálfstæðishúsinu einu sinni í viku eða oftar. Þetta framtak hefur að  vonum vakið nokkra athygli, og þótti fréttamanni S. U. S.-síðunnar því rétt að líta inn á eitt slíkt kvöld og hafa tal of helstu forustumönnum þar, með ljósmyndara sér til  styrktar.

Stjórn Njarðar, félags ungra Sjálf-stæðismanna á Siglufirði er skipuð þeim Birni Jónassyni,  Jóhanni Ólafssyni og Þórhalli Daníelssyni. Þegar við komum á staðinn, var þar þröngt á þingi og  hvergi afdrep fyrir forvitna fréttasnápa nema í eldhúsinu. Þangað tókst okkur um síðir að stefna  stjórninni til þess að svara nokkrum spurningum, og við ræddum fyrst við formann félagsins  Björn Jónasson. 

 

 

Stjórn F.U.S. Njarðar. Frá vinstri: Þórhallur Daníelsson ritari,

Björn Jónasson formaður og Jóhann Ólafsson gjaldkeri

 

Hvenær hófuð þið þessa starfsemi Björn, og hver er tilgangur hennar?

Snemma sumars var málinu hreyft í fyrsta sinn á stjórnarfundi hjá okkur og raunar ákveðið þá  að hefjast handa, en af óvirðanlegum ástæðum töfðust framkvæmdir nokkuð, eða þar til um miðjan júlí s.1. það sem aðallega valar fyrir okkur með þessari starfsemi er að bæta  aðstöðu ungs fólks til þess að koma saman og skemmta sér samkvæmt tímans kröfum. Til þess  að gera starfræksluna mögulega og meira lifandi eru öll störf unnin af sjálfboðaliðum ungu fólki á  aldur við það, sem skemmtir sér hér aðallega. Þetta er ekki einungis hagkvæmt fyrirkomulag  heldur stuðlar það að auknum kynnum manna í milli, en eitt höfuð markmið okkar er að  sjálfsögðu að efla kynni meðals ungs fólks, er fjörðinn byggir. Þó segja megi að allt varðandi  þetta fyrirtæki sé á byrjunarstigi, þá hefur aðsóknin verið mjög góð, og við höfum ástæðu til þess að líta  björtum augum til framtíðarinnar.

 

Hvað vilt þú segja Jóhann um rekstrargrundvöllinn sem gjaldkeri félagsins?

Hann verður að teljast nokkuð góður. Að sjálfsögðu miðum við reksturinn eingöngu við það  að hann sé hallalaus, og lánar Sjálfstæðisflokkurinn hús sitt í því skyni án endurgjalds. Hljóm  sveitin „Stormar", sem starfa mun með okkur í sumar, er eingöngu ráðin upp á áhættuþóknun þ.  e. hún fær allan aðgangseyri, en borgar af því skemmtanaskatt og fleira. Annar  reksturskostnaður greiðist með ágóða af veitingum. Því miður er húsið full lítið og allur kostnaður þar af leiðandi tiltölulega mikill, þannig að verð á aðgöngu miðum og veitingum er hærra en  við hefðum kosið. En um það tjáir ekki að fást og við munum ótrauðir halda áfram á þeirri  braut, sem nú hefur verið mörkuð.

 

Hljómsveitin Stormar, ein vinsælasta unglingahljómsveit á

Norðurlandi um þessar mundir sér um fjör á skemmtunum F.U.S. Njarðar á Siglufirði.

 

En svo við víkjum talinu að þér Þórhallur hvað finnst þér um áhuga félagsmanna og starfsvilja?

Áhugi félagsmanna er mikill og mjög vel hefur gengið að fá menn til þess að starfa með okkur. Þó væri fengur í að fá fleiri og raunar sem flesta, því þá er þeim mun meira hægt að gera. ,,

Hafið þið í hyggju að gera starfsemina fölbreyttari, er fram líða stundir?

Eins og Björn gat um áðan, er allt hér á byrjunarstigi og ekki eins vel úr garði gert og  æskilegt hefði verið. En ef aðsóknin verður jafn góð hér eftir sem hingað til, þá er fyrirhugað að  koma með skemmtiþætti.i og ýmislegt annað til tilbreytingar Það ber sérstaklega að hafa í huga í  því samhundi að þó allt gangi vel í sumar með óbreyttu fyrirkomulagi er mun meiri nauðsyn á því  að hafa vetrarstarfsemina í góðu lagi. Hún þarf bæði að vera föl-breyttari og líflegri til þess að  geta komið að nokkru gagni. Því viljum við að lokum skora á ungt fólk í Siglufirði að leggja okkur lið að megni bæði hvað almenna  starfrækslu og skemmtiefni viðvíkur.   

                       Steingrímur Blöndal

Unga fólkið skemmtir sér og dansar nýjustu dansana.