Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Óánægja með Stórtjón, af veðri Einokun útvarps Leikur í snjónum Þið sjáið sjálfir um.. Söngur Vísir Bland frétta Ný löndunarbryggja Höfnin dýpkuð Pistill & fréttir Síld og ufsi Svartur fáni Þeir sem hafa... Með ungu fólki.. Haförninn kemur Strákagöng Það er komið gat Í gegn um göngin Skipbrotsmannaskýli Slys í göngunum Stutt rabb við .. Smáfréttir Síld á Siglufirði Nýtt sjúkrahús

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Í október 1966

Haförninn losaði 3000 tonn á Siglufirði

Siglufirði 14. október.

SÍLDARFLUTNINGASKIP síldarverksmiðjanna hér á Siglufirði  Haförninn fór í dag áleiðis austur á miðin, eftir að hafa stansað hér tæpa tvo sólarhringa við  losun á rúmlega 3000 tonnum af síldarfarmi.

Löndun gekk vel úr skipinu. Bræðsla hefst eftir helgi.

- Steingrímur.

 

 

Umferð um Strákagöng hafin?

Siglufirði 28. október.

FRÉTTARITARI Mbl. á Siglufirði, Steingrímur Kristinsson 

tjáði blaðinu í gær, að þá hafi verið unnið að því að ryðja Siglufjarðarskarð, en það tepptist í  síðastliðinni viku. Í gær unnu tvær ýtur við að ryðja skarðið, þar eð góðviðri hefur verið  undanfarna daga.

Steingrímur tjáði Mbl. ennfremur að heyrst hefði, að fólk hefði stolist til að fara um Stráka  göngin, bæðí gangandi og í bifreiðum. Vegagerðin lokar göngunum með vinnutækjum, þannig  að ekki er unnt að aka í gegn, en tækin hafa verið færð til, að því er Steingrímur kvað almanna  róm segja.