| 
 Fimmtudagurinn 6. 
                                        júní 1963.  
                                        Texti: Stefán 
                                        Friðbjarnarson, ljósmyndir: Steingrímur  Á
   skíðum í júní  
 Siglufirði,
    2. Júní.  Skarðs-mótið
    1963 hófst í gær með flokkasvigi kvenna. Braut: lengd 1200 m—fall-hæð
    250 m. hlið  30. Fjórir keppendur voru skráðir til leiks. 
    Sigurvegarar voru: 
    1. Kristín Þorgeislóttir, 
    Siglufirði, á 74 sek. sléttum. 2. Árdís
    Þórðardóttir Siglufirði, á 75,3 sek., og   
    3. Sigríður Júlíusdóttir, Siglufirði,
    á 77,8 sek.   Að lokinni keppni kvenna
    hófst stórsvig karla. Braut: 2300 m -- fallhæð 350 m. hlið 42.   Þessi keppni varð all
    hörð og skemmtileg. 43 keppendur voru skráðir til leiks, 17 frá
    Siglufirði, 11 frá Reykjavík, 6 frá Akureyri, 6 frá Ólafsfirði og 3
    frá Ísafirði. Jóhann Vilbergsson,
    Siglufirði sigraði glæsilega á 36,5 sek., 2. varð Svanberg
    Þórðarson, Ólafsfirði 87,2,  og 3-4 sæti Samúel Sigurðsson
    Ísafirði og Hafsteinn Sigurðsson Ísafirði á 92,6 sek. 
    Svanberg Þórðarson Ólafsfirði, sýndi að hann er 1. flokks íþróttamaður og 
    harður keppandi, sem ekki gefst upp þó á móti blási. Svanberg hafði rásnúmer         Kristín
    Þorgeirsdóttir 
    18. En við ræsingu vildi til það óhapp hjá tímavörðum að þeir heyrðu ekki 
    rás-sóninn, og ekki tókst að stoppa Svanverg, svo ferð hans niður brautina 
    varða til einskis farin. En Svanberg beit á jaxlinn, og sagði að svona lagað 
    hefði nú komið áður fyrir í heiminum, og sagðist skyldi fara aftur ef 
    einhver vildi koma með sér upp og halda á skíðunum fyrir sig.  Síðan 
    hélt Svanberg á brattann ásamt fylgdarmanni þessa 2300 metra leið upp 
    brattar hlíðar og erfiðar. 
    Gangan upp tók þrjá
    stundar- fjórðunga.   Svanberg hvíldi sig stundarkorn og hélt
    síðan á fullri ferð niður brattann og náði öðrum besta tíma í
    stórsviginu öllum til ánægju
    þó fáir væru eftir  
      2. dagur
    Sunnudagur 2. júní. 
    Keppt var í svigi
    kvenna og karla. Svigbraut kvenna var 43 hlið.   Sigurvegarar
    voru 
    1. Kristín Þorgeirsdóttir. Hún 
    hafði tímana 55,1 sek. og 56,1 sek; samt.111,2 sek.   
    2. Sigríður Júlíusdóttir 59,1 
    og 59,4; samt. 118,5 sek. og  
    3. Árdís Þórðardóttir. 60,9 og 
    58,3 sek., samt. 119,2 sek. allar frá Siglufirði.   
    Í Alpatvíkeppni
    sigruðu  
    1. Kristín Þorkelsdóttir með 0,00 stig 
    2. Árdís, 5,33 stig  
    3. Sigríður, 6,95 stig    
    Í svigi karla sigraði Jóhann 
    Vilbergsson glæsilega.  Tími hans var 49 sek. og 49,6; samt. 98,6 sek. 
     
    2. Svanberg Þórðarson, 
    Ólafsfirði, á  52 og 52,9; samt. 104,9 sek;   
    3. Hjálmar Stefánsson,  
    Siglufirði   
    Jóhann sigraði einnig í 
    Alpatvíkeppni og vann nú til eignar glæsilega styttu af skíðamanni, sem 
    keppt hefur verið um á Skarðsmóti allt frá byrjun, eða í 7 ár.   
    Keppandi þurfti annað hvort að 
    vinna styttuna alls 5 sinnum eða þrisvar sinnum í röð, en það gerð Jóhann í 
    þriðja sinn nú. 
    Stig keppanda í stórsvigi, þrír 
    þeir fyrstu: 
                                                            
          | Nafn | svig | stórsvig | samtals |  
          | Jóhann, Siglufirði | 0,00 | 0,00 | 0,00 |  
          | Svanberg, Ólafsfirði | 0,48 | 3,78 | 5,33 |  
          | Samúel, Ísafirði | 42,1 | 67,2 | 10,93 |    
    Eftir að
    Skarðsmótinu var lokið, var komið á lítilli svigkeppni unglinga innan
      við 14 ára og sigraði í þeirri keppni Eyþór Haraldsson, sonur
      Haralds Pálssonar Hins gamalkunna skíðakappa, fyrrverandi
      Siglfirðings, en nú Reykvíkings. Haraldur tók þátt í Skarðsmótinu
      að þessu sinni fyrir Reykjavík.  
                                        Kl.
    20:30 um kvöldið var háður knattspyrnukappleikur á milli Siglfirskra skíðamanna og aðkomu skíðamanna sem lauk með sigri Siglfirðinga,
    1:0.   Kl.22:30 var kaffisamsæti og verðlauna afhending að
    hótel Höfn, og síðan dansað frá 24-2.  
         Jóhann
    Vilbergsson með verðlaunin sín, styttuna góðu og þrjá bikara         
         Svanberg
     þurfti að fara tvisvar upp á brún. Hér er hann ásamt fylgdarmanni
     sínum, ljósmyndara Mbl., S.K., sem tók að sér að bera skíði hans
     upp á brún.       
      Athugasemdir
    SK (var EKKI í Mbl.)    
      Varðandi gönguna upp á tind, á þessum tímum árið 1963, þá voru
      ekki lyftur til að flytja skíðakappana, í sama mæli og í dag árið
      2001, heldur urðu þeir öllu jöfnu að ganga upp start-staðinn og
      oftast sjálfir með skíði sín á öxlinni.   |