Á
Siglufirði. Ljósmyndari
Mbl. á Siglufirði Steingrímur Kristinsson, sendi blaðinu myndir
þær sem hér birtast, en þær voru teknar þar nyrðra í sl.
viku.

Tvær þeirra eru af ufsaveiðum á
Siglufirði. Eins og jafnan, fyllist höfnin í Siglufirði af ufsa,
smáum og stórum í kjölfar síldveiðiflotans og síldarvinnslunnar.
Unir hann hag sínum vel í því matarbúri, sem Siglufjörður verður að
yfir sumarmánuðina. Trillubátarnir hafa fullfermi af ufsa úr sjó á
örskammri stundu. Börn og fullorðnir veiða sér til skemmtunar á
bryggjuhausum og frumstæðir veiðimenn afla ufsa með berum höndunum
við fjörugrjóti.
Háa myndin, tveggja dálka
er tekin í fjöruborðinu þar sem tveir vinnufélagar úr landi,
Helgi Sigurðsson nær og Einar Björnsson fjær eru að veiða ufsa
með berum höndunum, í kaffitímanum. Veiðiskapurinn gekk vel
þótt aðferð fornaldarmanna væri notuð. Sýnir það glöggt
samhengið í veiðilistasögu Íslendinga, að um leið og
útlendingar dáðst að því hve við erum fljótir að tileinka
okkur allar nýjungar í veiðiskap og hæla okkur fyrir snögg
viðbrögð varðandi nýjustu uppfinningar, skuli hin elsta
veiðiaðferð enn notuð með góðum árangri .

Myndin hér til hliðar sýnir þrjá af fjórum síldarskjóðurum sem sem eru nú í notkun hjá SR-46 í
Siglufirði. Þeir voru settir niður vorið 1962 og eru íslensk
smíði.

Þá eru hér til hliðar sex mjölskilvindur, sem settar voru upp hjá SR-46 í
Siglufirði nú í vor. Þær eru af "de Laval" gerð og
koma í stað hristi-sía sem áður voru notaðar, en þykja nú
úreltar. Þessi fullkomnu tæki hafa þegar verið reynd með
góðum árangri.

Myndin hér sýnir hvernig skipverjar á
v.b. Fróðakletti styttu sér stundir meðan gert var við síldarnót
þeirra. Þeir gerðu sér litla hringnót og köstuðu á ufsann, sem var í
sjónum fyrir framan bryggjuna. Þeir öfluðu svo vel, að þeir voru
nærri búnir að sökkva plastkænunni sem þeir notuðu, vegna ofhleðslu.

Að lokum er hér ein mynd
úr íþróttalífinu, til að sanna, að það er hugsað um fleira
en síld og ufsa norður á Siglufirði. Myndin var tekin á
knattspyrnukappleik í II deild Íslandskeppninnar 1963 Sunnudaginn
23 júní. KS, Siglufirði og ÍBH, Hafnarfirði, kepptu. leiknum
lauk með jafntefli 2:2. -- Á myndinni sést markvörður
Siglfirðinga grípa knöttinn. Hafnfirðingur reyndi að ná
boltanum en varð einum of seinn.
|