Æskulýðsstarf | Fjallabátar | Rauðka - soðstöð | Skarðsmótið ´63 | Fjallasýn | Fyrsta síldin | Refaveiði | Dýpkun - Björninn | Það var ekkert vont.. | Eldur í Sunnu | Frumstæð ufsaveiði | Myndir úr síldinni | Landladga á Sigló | Tilraunafloti | Útfluttningur | 200 ára afmæli | Flugslys | Raufarhafnarsíld | Sundmót | Vetrarolimpiuleikar | Fimm valdir | Snjóflóð á Sigló | Óboðinn jólagestur

>>>>>>>>>>> 200 ára afmæli

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Sunnudagurinn 1. september 1963 - Ljósmyndir og texti undir myndum: Steingrímur. Annar texti og frásögn: Björn í Bæ á Höfðaströnd.

Minnst 200 ára afmælis

dómkirkjunnar á Hólum

Frásögn Björns í Bæ af hátíðahöldunum sl. sunnudag

Skrúðganga presta á leið til kirkju

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það eru ekki lengur troðnar götur, sem farið er um, og ekki sjást ríðandi eða gangandi á leið heim að Hólum í þetta sinn -- nei, það er beinn vegur og upphleyptur frá Laufskálaholti og alla leið heim að dómkirkjunni. Bílarnir bruna með prúðbúið fólk, því í dag er merkisdagur, -- tvö hundruð ára afmæli kirkjunnar og við heyrum fólkið segja: "Gleðilega hátíð !"     

 

 Í Hjaltadalnum var nokkuð þungbúið loft en rigningarlaust, svo hinir mörgu gestir, líklega um 500 talsins,  gátu notið helgi staðarins og athafnarinnar, er fram fór.

Athöfnin í dómkirkjunni að Hólum hófst klukkan tvö, er 56 prestar, biskup Íslands, vígslubiskup Hóladómkirkju og dómkirkjupresturinn gengu skrúðbúnir í fylkingu til kirkju. 

Í hátíðarskrúða gengu þeir þeir fyrir altari, vígslubiskup, séra Sigurður Stefánsson  og dómkirkjupresturinn, séra Björn Björnsson. Þá las meðhjálparinn, Árni Sveinsson, bæn í  kórdyrunum, en kirkjukór Sauðárkróks undir stjórn Eyþórs Stefánssonar söng. Vakti söngurinn mikla hrifningu viðstaddra og rómuðu kirkjugestir bænina, sem sungin var með ágætum.

Hátíðarmessan hófst er biskupinn yfir Íslandi steig í stólinn. Í ræðu sinni lagði hann út af orðunum: "Ég mun gera þá glaða í mínu húsi".

Dómkirkjupresturinn flutti einnig stólræðu og lagði út af orðunum "Drag skó þína af fótum þér, því að sá staður sem þú stendur á er heilög jörð" Í ræðu sinni rakti Björn, sem þjónað hefur Hólakirkju í 23 ár, sögu þessa merkilega, elsta guðshúsi landsins.

Of  langt mál yrði að gera grein fyrir sögu þessarar byggingar, en aðeins má þó stikla á helstu atriðum. Þess má geta að kirkjan er um 28 metra löng, um 9 metra breið og um 4½ metri undir loft. Þykkt veggja er 90 sm. Eru þeir reistir úr blágrýti, en sandsteinn er utan og innan. Má segja að húsið sé allt traustlega reist. Svo kallaðar "frúardyr" eru á suðurhlið en aðaldyr að vestan.  Yfir þær dyr er letrað á marmaratöflu: " Hinum þríeina Guði og Friðrik konungi V. --1762".  Friðrik konungur mun hafa safnað og látið til kirkjunnar 50 þúsund dali, en Gísli biskup Magnússon gekkst mest fyrir byggingu hennar. Enginn kemur svo inn í Hóladómkirkju, að hann verði ekki snortinn af helgi staðarins. Þar er ekkert prjál en sérhver hlutur eða mynd vekur lotningu. Altaristaflan, Kristlíkneskið, skírnarfonturinn, predikunarstóllinn, ásamt fjölda helgra muna og málverka lætur fólkið finna að þarna er heilagur staður. 

Undir gólfi kirkjunnar hvíla margir biskupar, sem gert hafa staðinn frægan, en biskupsstóll var þar frá 1106 til 1801. allir minnast þeirra Jóns biskups Ögmundssonar, hins helga, sem sat á biskupsstóli 1106 til 1121. Í þann tíð myndaðist orðtæki, sem ennþá lifir í tungu þjóðarinnar: "Heima að Hólum" Þá varð Guðmundur Arason biskup um 1200. Fékk hann hjá alþjóð viðurnefnið: "hinn góði", enda mátti hann ekkert aumt sjá og vildi öllum gott gera.

Þó er Jón Arason okkur kunnastur. Var honum til vegsemdar reistur veglegur turn nálægt dómkirkjunni. Þetta veglega minnismerki um Jón Arason mun halda uppi nafni hans um aldir. þá má ekki gleyma fræðimanninum Guðbrandi Þorlákssyni, sem að Hólum sat 1571 til 1627. Í því mikla safni, sem hann gaf út, mun Guðbrandsbiblía vera merkust og halda uppi nafni hans meðan kristin kirkja er við lýði í landi hér.

Kirkjuathöfnin öll var hin virðulegasta. Öll sæti voru þéttskipuð og mikil þröng standandi fólks milli bekkja. Einnig var úti fólk sem eigi komst inn í kirkjuna. Eftir stólræðu gekk biskup Íslands fyrir altari og lauk guðsþjónustu. Að því loknu flutti Bjarni Benediktsson, kirkjumálaráðherra, ávarp þar sem hann tilkynnti, að ríkisstjórn Íslands hefði ákveðið að gefa klukkur í turn þan er reistur var til minningar um Jón Arason.  Þakkaði dómkirkjuprestur gjöfina og sagði að í öndverðu hefði verið  áætlað að setja upp klukkur en fé hefði vantað. Nú hefði verið úr því bætt af rausn.

Eftir kirkjuathöfnina var hlé. Voru þá  veitingar fram reiddar handa kirkjugestum. Kl. 5 hófst svo annar liður hátíðahaldanna með samkomu í dómkirkjunni. Söngflokkurinn söng "Heyr himna smiður" og dr. Páll Ísólfsson lék þrjú tónverk á orgel kirkjunnar. Svipmyndir úr sögu dómkirkjunnar voru fluttar af dr. Kristjáni Eldjárn, dr. Brodda Jóhannessyni og Andrési Björnssyni.  Þá lék dr. Pál aftur þrjú tónverk. Dagskránni lauk með því að söngflokkurinn flutti þjóðsönginn.





Öll hátíðin frá byrjun fór fram með miklum hátíðarbrag. Hinn nýi skólastjóri á Hólum, Haukur Jörundsson hafði veg og vanda af öllum undirbúningi, sem var honum til sóma og gefur von um, að í fleiru verði störf hans Hólum og Hólaskóla til blessunar.

 

Bjarni Benediktsson, kirkju-málaráðherra flytur ávarp sitt.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Biskupinn yfir Íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson flytur hina postullegu kveðju

fyrir altari Hóladómkirkju.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Frá Hólahátíðinni. Sr. Sigurður Stefánsson vígslubiskup, sr. Björn Björnsson,

Hólabiskup og herra Sigurbjörn Einarsson biskup ganga til kirkju.

Séð heim að Hólum, er 200 ára afmælis dómkirkjunnar þar minnst sl. sunnudag.