Útsvarsfrelsi | Saga Rauðku | Rauðku-raunir | "Stóra hneisklið" | Erlendur, fógetinn og | Aflaskýrsla | Vinna verður að... | Atvinnuleysið og .. | "Þrenningin" | Norðurlandssíldin | Lánsábyrgðin | Opið bréf til Aage Sch. | Fyrirspurn svarað | Lýsisheslustöð Einherji | Niðurrifsöfl | Fréttir af fundi | Úrskurður ráðherra | Aftur rennur lygi ... | Enn um úrskurðinn | Falkurábyrgðin | Aumingja Schiöth | Niðursuðuverksmiðjan | Yfirgangur SR | Þóroddur og lýsisgeymar

>>>>>>>>>>> Atvinnuleysið og ..

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Neisti 12. apríl 1945

ATVINNULEYSIÐ OG SÍLDARVERKSMIÐJUR RÍKISINS

 

Það virðist sem hinn leiði vágestur Siglfirðinga, atvinnuleysið, sé verða staðbundinn gestur hér alla vetrarmánuðina. Oft hefur það verið erfitt undanfarna vetur, en ég held þó, veturinn sem nú er brátt á enda slái alla aðra út hvað lélega afkomu manna snertir.

 

Margir bjuggust við með valdatöku núverandi ríkisstjórnar, myndi eitthvað rofa í lofti með það, að menn hér sem annarstaðar þyrftu ekki gangs auðum höndum. ekki mundi verða fetað jafn, dyggilega í fótspor fyrrverandi ríkisstjórnar og raun ber vitni um hér.

 

Nú skal því ekki neitað, núverandi ríkisstjórn hefur mörg og merk mál á döfinni, sem án efa bæta í framtíðina úr mestu atvinnuþörfinni, en meðan slíkt er ekki komið í framkvæmd, þarf nota þær leiðir sem möguleikar eru á.

 

Atvinnumálanefnd Þróttar lagði fram ýtarlegar tillögur snemma í vetur varðandi lausn á þessum málum, bæði hvað snertir bráðabirgðalausn þessara mála, og eins hvað snertir framtíðina. Undirtektir þeirra manna, sem um þessi mál áttu að fjalla voru sæmilegar í fyrstu, en svo liðu dagar, vikur og mánuðir og ekkert var gert.

 

Kröfur verkamannafélagsins voru aðallega til tveggja aðilja, bæjarins og ríkisverksmiðjanna. Það eina, sem bærinn hefur látið framkvæma er endurbygging Rauðku, sem þó hefur gengið hægar en efni stóðu til, og flutningar á grjóti í höfnina.

 

Vitanlega hefur þessi vinna ekki verið nema handa fáum mönnum. Nú er þó byrjað á vatnsveitunni og mun hún skapa allmikla vinnu á komandi vori. Hinn aðilinn, sem félagið taldi, hefði möguleika til veita allmikla vetrarvinnu, voru Síldarverksmiðjur ríkisins.

 

En það er nú svo, sjaldan hefur verið minni vinna en í vetur. Nú er þetta ekki fyrir það, verkefni séu ekki fyrir hendi. Það er öllum vitanlegt, hér á reisa stóra síldarverksmiðju til viðbótar. Sömuleiðis gera allmiklar breytingar á eldri verksmiðjunum, og ennfremur byggja skrifstofu- og lagerhús.

 

Hvernig stendur þá á því ekki er hafist handa um eitthvað af þessu, flutning á efni, gröft eða annað því um líkt. Hver ræður því, þessi dráttur er á öllum framkvæmdum í sambandi við þetta fyrirtæki. Það eru ekki nema þrír aðiljar, sem geta svarað þessum spurningum: Atvinnumálaráðherra, stjórn verksmiðjanna og framkvæmdarstjóri.

 

Eru þeir allir sammála um, þetta sé nauðsynlegt til tryggingar góðri afkomu verksmiðjanna, eða á þetta aðeins vera til storka verkalýðssamtökunum og gera verkamönnunum erfiðara fyrir vera fjárhagslega sjálfstæðir?

 

Því skal tæpast trúað um atvinnumálaráðherra, sem er þingmaður Siglfirðinga, hann sé hvatamaður þessa ófremdar ástands. Það er minnsta kosti ekki líklegt, hann auki mikið fylgi sitt með slíkum ráðstöfunum. Eða ef það er verksmiðjustjórn og framkvæmdarstjóri, sem liggja eins og mara á öllu, hefur hann ekki þá möguleika til þess nota það vald, sem honum er veitt sem ráðherra til fyrirskipa framkvæmdir, sem hann telur nauðsynlegar. Þessar spurningar liggja á vörum allra þeirra atvinnuleysinga,sem byggja afkomu sina á atvinnu hjá þessu fyrirtæki, og viðkomandi aðiljar verða svara þeim.

 

Almenningur krefst þess vita þetta svo hann viti hver af þessum aðilum er honum andstæður, og fái þar með möguleika til losna við þann ófögnuð, það fyrsta hægt er.