Rann á hjarni | Siglfirðingur vann | Gífurlegur snjór | Íslandsmót (1) | Íslandsmót (2) | Vélsleði skáta | Þotukeppni | Þyrla sótti slasaðan | Snjóþungi í mars | Halla Haraldsdóttir | Afreksmaður ... | Dakoda flugvél á Sigló | Haförninn og .. | Hvað heitir paddan | Með Haferninum | Heimasætur | Tilraun með síld | Saltað í flestum.. | ASN þingfulltrúar | Strákagöng senn | Einangrun rofin | Fréttir og prestar

>>>>>>>>>>> Þotukeppni

 

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Fimmtudagur 30 mars 1967  Ljósmyndir og texti: Steingrímur

Snjóþotukeppni á Siglufirði

Frá snjóþotukeppninni. - Fjöldi fólks fylgdist með keppninni.

Siglufirði 29. mars 1967

NÝ íþróttagrein virðist vera að ryðja sér rúm á Íslandi, er það snjóþotukeppni. Sú fyrsta, eftir því  sem ég best veit var háð á Siglufirði 21. mars sl. nokkurskonar undanfari Íslandsmóts á skíðum.

 

Í þotukeppninni tóku þátt á milli 60-70 börn á aldrinum 4-10 ára í tveim flokkum.

 

Mikill fólksfjöldi fylgdist með keppninni og mikill spenningur var ríkjandi..

 

Krakkarnir, strákar og stelpur voru misjafnlega lagin að stýra þotunum. Sumir komust klakklaust alla leið,  öðrum hlekktist oft á, sumir voru það ruglaðir og spenntir, að eftir að hafa hlekkst á og fundið þotu sína, að þeir jafnvel snéru  þotunni og sjálfum sér, upp á móti brekkunni, þegar halda átti af stað aftur.

 

En allt fór þetta vel og allir ánægðir, bæði þeir sem sigruðu, en þeir fengu stór páskaegg í verðlaun, svo og þeir sem töpuðu, sem fengu minni egg. Einn af þeim sem töpuðu, 5 ára snáði sagði mér að hann ætlaði, að vinna næst og ætlaði þá að verða Íslandsmeistari á snjóþotu.      SK

 

Oft fengu keppendur slæma byltu, en létu sér fátt um finnast því hugurinn var allur við keppnina  bundinn.