Rann á hjarni | Siglfirðingur vann | Gífurlegur snjór | Íslandsmót (1) | Íslandsmót (2) | Vélsleði skáta | Þotukeppni | Þyrla sótti slasaðan | Snjóþungi í mars | Halla Haraldsdóttir | Afreksmaður ... | Dakoda flugvél á Sigló | Haförninn og .. | Hvað heitir paddan | Með Haferninum | Heimasætur | Tilraun með síld | Saltað í flestum.. | ASN þingfulltrúar | Strákagöng senn | Einangrun rofin | Fréttir og prestar

>>>>>>>>>>> Rann á hjarni

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sunnudagur 25. janúar 1967  Frétt: Steingrímur (þá skipverji ( haltur) á Haferninum í höfn)

Rann á hjarni niður hlíðina

Siglfirski pilturinn fannst slasaður í fjallshlíð - - lá þar í 2ja gráðu frosti fram á nótt

 

SIGLUFIRÐI, 24. janúar.----- Í gærkveldi var lögreglan beðin um aðstoð vegna leitar að  ungum pilti, Júlíusi Jónssyni, Hvanneyrarbraut 62, sem ekki hafði komið heim til sín. 

 

Lögreglan brá skjótt við og óskaði eftir aðstoð skáta og Björgunarsveitar  Siglufjarðar.

 

Vitað var, að Júlíus hafði farið skömmu eflir kl. 13:00 einn síns liðs upp í fjall til myndatöku. Hann hafði átt frí rúman klukkutíma í skólanum og ætlaði að nota  tímann í góða veðrinu til að taka myndir í fjallshlíðinni. Það var hið síðasta, sem vitað  var um Júlíus, en þetta spurðist samt ekki fyrr en kl. 10 um kvöldið. Það var  einn skólafélagi Júlíusar, sem vissi um þessa ætlan  hans.

 

Skátar og Björgunarsveitin brugðu skjótt við og eftir tæplega klukkustundar leit  fannst Júlíus. Hann var með meðvitund, en mikið skaddaður á höfði og gat sig ekki  hreyft. Júlíus var að stytta sér leið yfir hjarn í fjallinu, en  skrikaði fótur og rann 5O-60 metra niður hjarnið þar til  hann stöðvaðist í grjóturð.

 

Sigurður Þorsteinsson, skipstjóri á Haferninum, bauð strax aðstoð sína og  skipverja, strax og hann vissi um leitina. En um það leiti, sem skipverjar voru að  leggja af stað til leitar, fréttist um fund piltsins. En um tíma höfðu skipverjar á  Haferninum lýst upp fjallshlíðina með ljóskastara frá skipinu

 

Júlíus Jónsson er í landsprófsdeild Gagnfræðaskóla  Siglufjarðar og er 15 ára að aldri. Júlíus var fluttur á sjúkrahúsið, þar sem gert var að sárum hans. Líður honum eftir  atvikum í dag.

 

Júlíus var allmikið þjakaður er hann fannst, enda var 2 stiga frost mestan tímann.

 

Aðstandendur piltsins hafa beðið fyrir þakkir til allra þeirra er töku þátt i leitinni. -  SK.