Bland
dagsetninga:
Fréttir
af
Haferninum,
síld
ofl.
+ Myndasyrpa frá Haferninum. Texti:
Steingrímur.
Haförninn
landar
3.200
tonnum
Siglufirði,
3.
júlí.
SÍLDARFLUTNINGASKIPIÐ
Haförninn
er
að
landa
hér
í
dag
3.200
tonnum
og
er
þetta
annar
farmurinn,
sem
skipið
kemur
með,
fyrri
farmurinn
var
180O
tonn.
Síldin
fer
í
bræðslu
hjá
SR,
en
hún
var
sótt
á
miðin
við
Jan
Mayen
og
Svalbarða.
S.K
Síldin
vel
söltunarhæf
eftir
4
daga
geymslu
í
ís
og
pækli
Siglufirði,
14.
September.
HAFÖRNINN
kom
í
morgun
með
fullfermi
og
hefur
þá
alls
flutt,
yfir
40
þúsund
tonn
bræðslusíldar
hingað
í
sumar
og
haust.
Þessi
síld
er
öll
af
hinum
fjarlægu
miðum
við
Jan
Mayen
og
Svalbarða.
Í
þessari
ferð
kom
Haförninn
einnig
með
ísaða
síld
og
síld
í
pækli
í
tilraunaskyni
á
vegum
Síldarverksmiðja
ríkisins
og
niðurlagningarverksmiðjunnar,
Sigló-síld.
Úr
þessum
tilraunum
fengust
um
20
uppsaltaðar
tunnur,
bæði
úr
ísuðu
síldinni
og
þeirri
í
pæklinum.
Ísaða
síldin
reyndist
betur
til
söltunar,
þ.e.a.s.
síldin,
sem
var
efst
í
kössunum.
Um
það
bil
helmingur
af
þessum
tuttugu
tunnum
var
úr
ísauðu
síldinni
en
hinn
helmingurinn
úr
pæklinum.
Öll
"tilrauna"síldin,
sem
Haförninn
kom
með,
reyndist
vel
söltunarhæf
og
þurfti
engu
að
henda
af
henni.
Hefur
oft
verið
söltuð
hér
verri
síld.
Þessi
reynsla,
sem
hér
hefur
fengist,
sýnir
að
vel
er
mögulegt
er
að
flytja
síldina
ísaða
í
kössum
eða
í
pækli
í
tönkum.
Þó
með
smávægilegum
breytingum
frá
þessum
tilraunum.
Síldin
var
orðin
um
fjögurra
sólarhringa
gömul,
þegar
Haförninn
kom
með
hana
hingað.
Í
sumar
hefur
Haförninn
flutt
til
síldveiðiflotans
um
1.300
tonn
af
brennsluolíu.
Telja
sjómenn
nauðsyn
til
þess
að
hafa
olíuskip
sem
fylgi
síldveiðiflotanum.
SK
Haförninn
með
fullfermi
Siglufirði,
20.
júlí.
HAFÖRNINN
kom
inn
í
nótt
með
fullfermi
síldar
frá
Jan Mayen
með
tæpar
3.300
lestir
síldar
til
bræðslu.
Byrjað
var
að
landa
um
hálf
þrjúleytið
í
nótt
og
lýkur
löndun
væntanlega
í
kvöld.
Síldin
fer
öll
í
vinnslu
hjá
Síldarverksmiðjum
ríkisins
á
Siglufirði.
SK
Haförninn
losaði
á
mettíma
Siglufirði,
20.
september.
SÍLDARFLUTNINGASKIPIÐ
Haförninn
kom
hingað
í
gær
og
losaði
3.300
tonn
á
tólf
tímum,
sem
er
mettími.
Skipið
fór
aftur
á
miðin
í
morgun.
Í
dag
kom
svo
Ársæll
Sigurðsson
með
800
tunnur
af
hausaðri
og
slógdreginni
síld
í
pækli
og
200
tunnur
af
skúfflaðri
síld.
Á
morgun
er
Siglfirðingur
SI
150
væntanlegur
með
200
tonn
af
ísaðri
síld.
Í
dag
var
hér
sótsvört
þoka
og
skyggni
25
til
50
metrar,
sem
er
heldur
óvenjulegt
hér
á
Siglufirði.
-
SK
Siglfirðingar
óánægðir
með
útvarpið
Siglufirði,
6.
nóvember.
UNDANFARNA
mánuði,
eða
raunar
undanfarin
ár
hafa
Siglfirðingar
þurft
að
búa
við
mjög
slæm
hlustunarskilyrði
á
útsendingum
ríkisútvarpsins
og
þrátt
fyrir
ítrekaðar
tilraunir
af
hálfu
hlustenda,
til
að
fá
úr
þeim
bætt
hafa
þær
ekki
fengist.
Það
hafa
aðeins
verið
endurtekin
loforð
frá
útvarpsstjóra
um
að
athuga
málið.
Útilokað
er.að
hlusta
á
nokkra
tónlist
á
útsendingum
Ríkisútvarpsins.
unglingarnir
geta
ekki
einu
sinni
hlustað
á
hina
háværu
táningamúsík,
vegna
þess
hve
fölsk
og
trufluð
útisending
er.
Lokar
fólk
því
aftast
fyrir
tækin,
fremur
en
að
hlusta
á
hið
misþyrmda
efni.
Sumir
hlusta
eingöngu
á
fréttir,
en
gefast
oft
upp
á
að
hlusta
þrátt
fyrir
að
von
sé
á
góðu
útvarpsefni.
Hér
eru
háværar
raddir
um
að
hér
verði
settur
upp FM
sendir
sem
veiti
Siglfirðingum
óaðfinnanlegar
út-sendingar
á
dagskrárefni
Ríkisútvarpsins.
Að
lokum
má
geta
þess,
að
til
stendur
að
eina
radíóviðgerðarstofan
hér
hætti
störfum
um
næstu
áramót
og
veiti
eftirleiðis
aðeins
umboðsþjónustu.
SK
Haförninn
á
mettíma
af
miðunum
Siglufirði,
25.
ágúst.
SÍLDARFLUTNINGASKIPIÐ
Haförninn
kom
til
Siglufjarðar
í
gærkvöldi
með
3.300
tonn
af
síldarmiðunum
fyrir
austan.
Affermingu
lauk
í
dag.
og
fór
skipið
aftur
í
kvöld
Haförninn
var
aðeins
þrjá
og
hálfan
sólarhring
í
þessari
ferð
og
hefur
aldrei
verið
svo
fljótur
í
ferðum
áður.
Er
þetta
í
annað
skiptið
í
þessari
viku
sem
hann
landar
á
Siglufirði.
SK
Haförninn
hættur
síldarflutningum
Siglufirði,
6.
nóvember.
HAFÖRNINN
kom
hingað
sl.
laugardag
og
er
þar
með
hættur
síldarflutningum
í
ár.
Alls
hefur
hann
flutt
til
Siglufjarðar
yfir
50
þúsund
tonn
af
síld,
sem
að
ómetanlegu
gagni
hafa
komið.
Verið
er
að
útbúa
hann
undir
lýsisflutninga,
en
alls
óráðið
hvenær
byrjað
verður
á
þeim.
Verið
er
að
reyna
að
leigja
Haförninn
í
stuttan
tíma,
eða
þar
til
SR
telur
hagkvæmt
að
selja
sitt
eigið
lýsi,
og
flytja
það.
út.
--SK
Prestleysi
Siglufirði
Siglufirði
6.
nóvember.
PRESTLAUST
má
heita
að
hafi
hér
verið
síðan
í
júní
í
sumar
aðeins
þrjár
til
fjórar
messur
sungnar
á
tímabilinu,
þar
af
ein
sem
Hofsósprestur
þjónaði
við.
Sóknarpresturinn
hér
mun
vera
í
kosningabaráttu
suður
í
Reykjavík,
þar
sem
hann
hefur
sótt
um.
starf
við
Hallgrímskirkja.
SK
LEIÐRÉTTING
Siglufirði,
10.
nóvember-
VEGNA
fréttar
í
Mbl.
í
dag,
þar
sem
getið
er,
að
aðeins
þrjár
til
fjórar
messur
hafi
verið
hér
haldnar
frá
í
júní
þetta
ár,
hefur
sóknarpresturinn
séra
Ragnar
Fjalar
Lárusson
tjáð
mér,
að
rangt
sé
farið
með
fjölda
messa
á
tímabilinu.
Samkvænt
upplýsingum,
sem
ég
aflaði
mér
hjá
meðhjálpara
Guðbrandi
Magnússyni
þá
mun
messufjöldi
umrætt
tímabil
hafa
verið
átta,
þar
af
ein
útimessa
i
(17,
júní),
en
ekki
þrjár
til
fjórar,
eins
og
segir
í
fyrri
frétt.
Að
auki
mun
séra
Ragnar
hafa
unnið
störf
við
ferðalag
með
fermingabörnum,
sótt
mót
Æ.S.K.
á
Hvammstanga
o.fl.
um
helgar
eða
samtals
má
telja
um
10
þjónustur
fyrir
utan
jarðarfarir
og
giftingar.
Eru
allar
þessar
upplýsingar
frá
meðhjálpara.
Einnig
gat
Séra
Ragnar
Fjalar
þess
í
samtalinu
við
mig,
að
á
þessu
tímabili
júní-október
hafi
hann
haft
fjögurra
vikna
frí
frá
störfum
samkvæmt
leyfi
biskups
vegna
lasleika.
Er
séra
Ragnar
Fjalar
beðinn
velvirðingar,
á
þessum
mistökum
og
leiðréttist
þetta
hér
með
----
Steingrímur.
Athugasemd
S.K
nú
árið
2001,
vegna
ofanritaðrar
"Leiðréttingar"
Undirritaður
sendi
jú
leiðréttingu,
smávægilegu,
sem höfð voru eftir dagbók eins kirkjukórsfélaga,
en
nákvæmlega
samkvæmt
upplýsingum
meðhjálparans,
en
ekki
samkvæmt
upplýsingum
í
símtali frá prestinum.
En
leiðréttingunni
var
breytt
hjá
setjara, Mbl.
af
óviðkomandi
starfsmanni
Mbl.
og
í
óþökk
og
án
vitundar
blaðamannsins
sem
við
leiðréttingunni
tók
frá
mér
og
skilaði
sem
minni
til
setjarans.
Hvernig
að
þessari
fölsun
og
nafnastuldi
(nafn
mitt
var
áfram
undir
"leiðréttingunni")
var
staðið,
ætla
ég
ekki
að
fara
út
í
nánar, en ritstjórnin upplýsti mig um hvernig og hverjir stóðu að fölsuninni, en þetta mál hafnaði
á borði ritstjórnar Morgunblaðsins, það var meir að segja á mig lagt hvort viðkomandi starfsmanni yrði sagt upp, sem ég vildi þó ekki hafa afskipti af nánar. Mér var nóg að vita hvaðan rótin var runnin.