Bíó auglýsingar | Grein um bíórekstur | Nýja Bíó,útib.Ólafsfirði | Frumvarp um bíórekstur | Bíómynda fréttir | Kuldi í Nýja Bíó | Nýtt kvikmyndahús | Siglufjarðarbíó | Kvikmyndakynning | Börnin og bíó | Kvöld í bíó ! | Bæjarpósturinn og bíó | Bíó umfjöllun | Til skammar | Bæjarpósturinn | Kjartan Ó Bjarnason | Björgunarafrekið | Slæm umsögn | M.Í.R. ofl. | Nýja Bíó lagfært | MÍR og bíó | Bíó-fréttir

>>>>>>>>>>> Björgunarafrekið

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Bíó-Saga Siglufjarðar: Björgunarafrekið

Úr Vikublaðinu

23.nóvember 1949

Bæjarpósturinn

Björgunarafrekið við Látrabjarg. - Slysavarnafélag Íslands,

 hefur undanfarið sýnt  kvikmynd þá, sem það lét búa  til um björgunarafrekið fræga  við Látrabjarg, víðsvegar um  landið.

Á mánudag og þriðjudag s.l.  14. og 15. nóvember var mynd þessi  sýnd hér í Nýja Bíó. Mynd  þessi er hin fróðlegasta og athyglisverðasta í alla staði.

Þó  að hún sé leikin að mestu leyti,  þ.e.a.s. björgunarsveitin endurtók í aðalatriðum björgunina  upp bjargið og önnur atriði í  sem mestri líkingu við það, sem  raunverulega gerðist hina örlagaríku daga 12. til 15. desember  1947 Björgunin úr hinu strandaða skipi er raunverulegur

þáttur, tekinn um leið og  mönnum var bjargað úr öðru  skipi af björgunarsveitinni  "Bræðrabandið", en svo eðlilega felldur inn í myndina, að  ekki vekur neina sérstaka eftirtekt.

Myndin í heild er eins og  áður var sagt, hin fróðlegasta,  og mun er stundir líða verða  talin góð heimild um starfsemi  björgunarsveita, þar sem þær  eru á annað borð meira en  nafnið tómt.

Hún gefur einnig  hugmynd um þá hetjulund, er  hinir vestfirsku alþýðumenn,  sem að þessari björgun stóðu,  geyma. Undir hversdagslegu  yfirbragði þeirra býr sú festa  og þor, þrautseigja og hyggjuvit, sem hefur att sterkasta  þáttinn í því að björgun þessi  tókst svo giftusamlega.

Flaustur og fum, fálm og hvatvísi hefðu eyðilagt alla möguleika til þess að góðum árangri  mætti ná við þær aðstæður,  sem þarna voru.

Slysavarnafélagið á miklar  þakkir skyldar fyrir að hafa  haft forgöngu um að láta, búa  til þessa mynd. Hver sá, sem  sér hana, sannfærist um það,  að þarna hafi í raun og veru  verið unnið einstætt björgunarafrek, og hann samgleðst í  hjarta, sínu "Bræðrabands-fólkinu",  þegar það að lokum hlýtur heiðurslaun fyrir afrek sitt.