Bæjarstjórn hefur skorað á Síldarverksmiðjur ríkisins,
að hefja karfavinnslu í stórum stíl.
A fundi Togaranefndarinnar þ.10. f.m. var samþykkt að senda b/v. Elliða
á karfaveiðar og selja aflann Síldarverksmiðjum ríkisins. Þessum
tíðindum var almennt fagnað í bænum.
Ákvörðunin um að selja aflann S.R., en ekki Rauðku, sem þó hefði verið
eðlilegra, var tekinn fyrst og fremst af því, að nægilegt dýpi fyrir
Elliða var ekki við Rauðkubryggjurnar, svo og var því treyst að S.R.
myndi fá fleiri togara hingað til karfaveiða og hefði í því sambandi
betri aðstæður en Rauðka.
Í framhaldi af þessum ráðstöfunum Togaranefndarinnar, samþykkti
bæjarstjórn Siglufjarðar á fundi 14. september svohljóðandi áskorun til
Síldarverksmiðja ríkisins:
"Bæjarstjórn samþykkir að skora á Síldarverksmiðjur ríkisins að
gera allt sem í þeirra valdi stendur til að flýta því að
karfavinnsla í stórum stíl hefjist í verksmiðjum þeirra í
Siglufirði."
Þetta var SR tilkynnt 15. september Þar sem afdrif máls þessa er
þýðingarmikið fyrir Siglfirðinga, hefur Einherji spurst fyrir um hvað
liði máli þessu.
Það sem gerst hefur í málinu er í stuttu máli þetta:
Viðskiptaframkvæmdastjóri SR. mun hafa rætt við framkvæmdastjóra
togarafélaganna í Vestmannaeyjum og Ísafirði en án árangurs.
Á fundi í stjórn S.R. þann 29. f.m. lagði Jón Kjartansson fram
svohljóðandi tillögu:
"Stjórn S.R. samþykkir að fela viðskiptaframkvæmdastjóra að kanna
til fulls, hvort togarar Ísafjarðar, Vestmannaeyja og Neskaupstaðar
eru fáanlegir til að stunda karfaveiðar í haust og leggja aflann upp
hjá S.R. á Siglufirði. Reynist ófáanlegt að fá togarana á
karfaveiðar fyrir það verð, sem nú er greitt fyrir karfa hjá S.R.
felur stjórn S.R. viðskiptaframkvæmdastjóra að rannsaka, hvort
togararnir fáist leigðir til karfaveiða í einn til tvo mánuði, og þá
með hvaða kjörum"
Tillaga þessi hefur ekki fengist samþykkt í stjórninni og formaður
stjórnar S.R. hefur lýst því yfir, að meirihluti verksmiðjustjórnar,
Sveinn Benediktsson, Sigurður Ágústsson og Erlendur Þorsteinsson séu
tillögunni andvígir.
Hefði tillaga Jóns Kjartanssonar verið samþykkt í verksmiðjustjórn fyrir
tæpum hálfum mánuði, væri mál þetta sennilega komið lengra en nú er og
verður að segja, að afstaða meirihluta stjórn ar S.R. er vægast sagt
furðuleg. |