"Jarmaðu nú, Móri minn".
Í Morgunblaðinu 13. þ.m. birtist svohljóðandi yfirlýsing:
"Út af ummælum Þormóðs Eyjólfssonar í Nýja Dagblaðinu 7. þ.m. um drykkjuskap og óstundvísi stafsmanna ríkisverksmiðjanna og fullkomna umbót á því fyrir atbeina Jóns Gunnarssonar viljum við taka fram eftirfarandi: -
Þar sem 150 menn eru samankomnir á einum vinnustað, mundi það einsdæmi ef þar fyndust aðeins bindindismenn, en að um nokkra óreglu hati verið að ræða verksmiðjunum í óhag, er með öllu tilhæfulaust og því ekki um neina umbót að ræða.
Ennfremur viljum við lýsa yfir óánægju okkar út af aðdróttunum, sem koma fram í áðurnefndri grein í garð fyrrverandi framkvæmdastjóra Ottesen, sem af öllum, sem til þekkja, er viðurkenndur stakur reglumaður, enda mjög ósennilegt að slík óregla sem gefið er í skyn að verið hafi meðal starfsmanna verksmiðjanna, hafi getað þróast í skjóli yfirstjórnar Þormóðs Eyjólfssonar, sem verið hefir formaður verksmiðjustjórnarinnar frá byrjun, að undanskildu árinu 1934.
Benoný Benediktsson, yfirvélstjóri.
Magnús Blöndal, skrifstofustjóri.
Jóhann F. Guðmundsson, yfirverkstjóri.
Guðmundur Sigurðsson.verkstjóri."
|