Sveinn Ben skrifar (1) | Sveinn Ben skrifar (2) | Sveinn Ben Skrifar (3) | Síldveiði og síldin | Bjargráð | Jón Gunnarsson | Grein Þormóðs E. | Jarmaðu nú Móri minn | Yfirlýsing | Svargrein Þ.E. | Jón Sigurðsson | Lítilþægir félagar | Prentsmiðjupúki | Til Gunnlaugs Hjálmars | Aftur til Sveins Ben. | Eftirmáli "púka" | Sveinn Ben. hervæðist | Greinagerð "Þróttar" | Þáttur Jóns Sigurðssonar | Þáttur Þ.Eyjólfssonar | Undirskriftirnar ofl. | Allt fullgott | Málalyktir | Gísli Halldórsson | Þ.E. og fleiri / fleira | Sannleiksást J.G. | Til Jóns Gunnarssonar | Karfi og vinnsla | Karvavinnsla | Heilindi kommúnista

>>>>>>>>>>> Til Jóns Gunnarssonar

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Neisti, 11. desember 1935

Nokkur orð til Jóns Gunnarssonar

Ég get verið stuttorður, þar sem svar J. G. til mín er að mestu endurtekning á fyrri grein hans.

 

Vilji J. G. halda því fram, að sömu skilyrði til andsvara og sami blaðakostur sé á Austurlandi og í Reykjavík, má hann fyrir mér, halda á lofti þeim kunnugleik sínum. - Hinu get ég trúað, að hann telji sig ekki varða um, hvað sé hetjulegt.

 

Reginvilla J. G. er sú, að hann þykist vita það, sem ekki skeði á fundi stjórnar og kauptaxtanefndar, en ekkert hafa heyrt um það, sem skeði.

 

Tilgangur minn melt því að fara að skrifa um þetta mál var sá, að hnekkja þeim ósannindum, sem hann heldur fram um gjörðir kauptaxtanefndar.

 

J. G. ber heldur ekki á móti því í svari sínu, að samþykktin sé rétt hjá mér, enda er hún svo kunn 0g svo margsannanleg, að ekki þýðir neitt fyrir J. G. né aðra að bera á móti henni.

 

Það má bæta Því við, að daginn eftir að hún var gjörð, var allt karfamálið til umræðu á bæjarstjórnarfundi.

 

Ég hef aldrei haldið því fram, að nokkuð hafi verið gjört í karfamálinu 27. september heldur 21., en þar sem J. G. færir þessa atburði til um viku í svari sínu, get ég ekki annað en látið mér detta í hug, að hann sé ekki vel viss á því sem hann er að skrifa um. Þar sem atburðir eru færðir til um viku, má búast við að fleiru sé vikið við.

 

J. G. segir: "En það kom tilkynning til mín af þessum fundi strax og honum var lokið".

 

Þetta er alveg rétt hjá honum, en ég verð að yfirlýsa það ósannindi að sú tilkynning hafi hljóðað upp á kr. 1.45.

 

Á öðrum stað segir J. G.: "Og varð það úr að ég bað Guðmund Sigurðsson að grennslast eftir því hjá verkamönnunum, hvort þeir vildu vinna fyrir þetta kaup".

 

Þetta var alveg rétt aðferð, hvora kauphæðina sem um var að ræða. því eð það var aðeins óþarfa áníðsla(!!) á verksmiðjustjórninni, að kalla hana saman að kvöldi dags, þegar hún var búin að þræla allan daginn fyrir sínum sultarlaunum, til þess að samþykkja kauphæðina, fyrr en fengin var vissa fyrir því, hvort verkamennirnir vildu vinna eða ekki.

Meining J. G. virðist vera sú, að koma því út, að sökin á þessari misþyrming fundarsamþykktarinnar sé eign Jóns Sigurðssonar.

 

Þó ég eigi ýmsa merka punkta í því máli, tel ég mér ekki leyfilegt að fara út í það að sinni, að Jóni Sigurðssyni fornspurðum, því að ég tel víst að hann kjósi heldur sjálfum sér það hlutverk, að kveða niður draugagang Jóns Gunnarssonar um hann í þessu máli.

 

n meðan ég er meðlimur Verkamannafélaginu "Þróttur", mun ég ekki láta það afskiptalaust, sé því misþyrmt á einhvern hátt.

Gunnlaugur Hjálmarsson.