Allt fullgott.
I viðskiltum Þ. E. og J. G. gagnvart verkalýðnum kom það öllu öðru greinilegar fram, að þeir vildu sífellt ganga á rétt verkalýðsins.
Allt var verkalýðnum fullgott og fullboðlegt. Og sú framkoma virtist vera í fullu trausti þess, að þeirra væri valdið.
Því verður það öllum ánægjuefni, að "valdi" Þormóðs í ríkisverksniðjunum er nú hnekkt til allverulegra muna
Og um daginn, þegar það fréttist, að Þ. E. mundi jafnvel fara úr verksmiðjustjórninni, þá vakti það almenna ánægju hér. En samtímis töluðu menn um það, að Þ.E. mundi feigur, ef hann gerði það af frjálsum vilja, eða ef hann yfirleitt léti það viðgangast (!) að annar Framsóknarmaður en hann yrði í verksmiðjustjórninni, svo framt, sem Framsókn ætti þar völ á sæti. |