Verður Rauðka stækkuð? | Blanda | Stjórnin svarar ekki | Fasteignaskattsmálið (1) | Hann fer að kula | Bæjarstjórnarfundur | Þormóður hótar | Mjölnis-molar | Leiðrétting .... | Annar borgarfundur | Umhyggja ! | Rauðka-Neisti | Borgarafundur (Neisti) | Rauðku-málið | Útvegsbankalánið | Mjölnir setur met í... | SR eða Rauðka? (1) | Óhróður Alþýðublaðsins | Hvar hviknar í næst? | Hverjir eiga að byggja | Eysteinn Jónsson "talar" | Borgarfundur (Einherji) | Reykjavíkurblöð um fundinn | Út af ummælum | 2 einkennilegir fundir ! | Hæstaréttardómur | Yfirlýsing-Rauðka | Rauðka-Siglfirðingur | Grein: Jón Gíslason | Tillaga minnihl. stj.SR

>>>>>>>>>>> Rauðka-Neisti

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Neisti, 16. maí 1939

Rauðka.

Nú að undanförnu hafa þeir Kristján Sigurðsson, bæjarstjóri og Hertervig verið í Reykjavík, til að vinna að framgangi þess, að leyfi fáist til endurbyggingar "Rauðku".

 

Þeir Kristján og bæjarstjóri komu heim s.l. sunnudagskvöld, en Hertervig var kominn nokkru fyrr.

 

Kristján Sigurásson hefir góðar vonir um að leyfi muni fást, eftir þeim undirtektum, sem þeir fengu á hærri stöðum, og það hefir bæjarstjóri einnig samkvæmt viðtali er "Vísir", hefir við hann átt s.l.  laugardag.

Þar segir bæjarstjóri svo meðal annars:

 

"Málið horfir mjög vel, Það hefir að vísu frestast lengur en við var búist vegna veikinda Ólafs Thors atvinnumálaráðherra, en við höfum átt viðræður við ríkisstjórnina og hefir hún tekið málinu vel, þannig að full ástæða er til að vænta þess, að engin tregða verði á málinu frá hennar hendi".

 

Eftir þessum upplýsingum að dæma, má mega vænta þess, að bráðlega fáist endanlegt samþykki til endurbyggingarinnar, svo hægt sé nú þegar að hefjast handa um allan nauðsynlegan undirbúning.

 

Leiðinlegt er til þess að vita, hvað reynt hefir verið af einstaka fólki að koma af stað tortryggni og úlfúð í sambandi við þetta mál.

 

Allir Siglfirðingar vita um upplýsingar og skrif Þóroddar um málið, sem fullyrða má að urðu framgangi þess til tafar.

 

Þá reyndi einhver miður góðgjarn náungi að útbreiða þær sögur syðra og einnig hér, að Stefán, Jóhann Stefánsson og Finnur Jónsson væru málinu andvígir, en sannleikurinn er sá, að í bankaráði Útvegsbankans hefir enginn ágreiningur orðið, en þar er Stefán J. Stefánsson formaður og var málinu mjög fylgiandi, og Finnur Jónsson hefir, f.h. Samvinnufélags Ísfirðinga, skrifað undir áskorun um að leyfið verði veitt.

 

Þá hefir einhver tungumjúk bæjarvíðförul sál reynt að læða því hér inn í hugi fólks, að verkamenn ríkisverksmiðjanna séu á móti því að Rauðka verði stækkuð, vegna þess, að það mundi taka frá þeim atvinnu.

 

Slíkt hefir vitanlega ekki við nein rök að styðjast, og fullvíst er, að allt verkafólk bæjarins stendur einhuga um að þessu nauðsynjamáli verði i framkvæmd komið.

 

Ástæða er til fyrir alla þá, sem vilja vinna að aukinni atvinnu og framleiðslu, að fagna því hve vel horfir með þetta mál, og mega þeir menn góða þökk hafa, sem best hafa þar að unnið.