Hræddir menn með slæmt mál.
Eflir því sem dagblöðin í Reykjavik herma, var haldinn einkennilegur æsingarfundur á Siglufirði síðastliðinn sunnudag.
Kommúnistar stóðu fyrir því fundarhaldi með einhverjum liðstyrk frá Alþýðuflokknum og Sjálfstæðismönnum.
Á fundinn var boðið meirihluta verksmiðjustjórnarinnar, aðeins í því skyni, að geta ráðist á þá menn með dónaskap, án þess að þeir ættu að hafa nokkra verulega aðstöðu til að skýra málin frá sinni hlið.
Þegar sýnt var, að ekki átti að beita mannasiðum, gekk verksmiðjustjórnin af fundi.
Kommúnistar, fylgifiskur þeirra, Erlendur Þorsteinsson og Finnur Jónsson, héldu þó áfram árásum og illindum við fjarstadda menn.
Þegar Þormóður Eyjólfsson, Þorsteinn M. Jónsson og Sveinn Benediktsson gengu út, eggjaði Áki Jakobsson samherja sína opinberlega til að beita stólfótaaðgerðum og ráðast með ofbeldi á þessa "heiðursgesti" fundarins, en þeirri ósk hans var ekki hlýtt.
Eini verulegi árangurinn af fundinum var sá, að á fundarlok samþykktu kommúnistar og Finnur Jónsson á Ísafirði, að Þormóður Eyjólfsson, sem í 20 ár hefir verið mestur og áhrifaríkastur maður í bænum um efnahags- og menningarmál Siglufjarðar, skyldi tafarlaust leggja niður umboð sitt í bæjarstjórn kaupstaðarins.
Meðan hitinn var í stólfótaliðinu, fannst því auðsýnilega, að það væri móðgun við staðinn, að í bæjarstjórninni væru menn, sem hefðu eitthvað lit brunns að bera annað en þá eiginleika sem skína á þeim samkomum, þar sem menn hafa lagt klæði menningar og góðra siða til hliðar um óákveðinn tíma.
Fundarboðendur byrjuðu samkomu sína með því að hindra að sjómenn og útgerðarmenn gætu komist inn í fundarhúsið.
Þar kom fram hin gamalkunna aðferð ýmsa verklýðsleiðtoga, að fórna rétti og hagsmunum sjómanna, hvenær sem því er að skipta.
Sjómaðurinn má vera í óvissunni um sina afkomu eins og landbóndinn. En lífvörður æsingamanna á landi á að vera tryggður móti öllum óhöppum, líka því, ef síldin bregst með öllu.
Tvennt er einkennilegt við þetta stólfótabrask á Siglufirði: Form fundarins og efni fundarins. Málefni fundarins var það, að Helgi Guðmundsson hafði í vetur og sumar verið í félagsskap við kommúnista á Siglufirði um að koma upp síldarbræðslu. Bærinn, undir stjórn kommúnista, hafði býsna litið að leggja fram í fyrirtækið, nema þann viturleik og þá menningu, sem þeirra lið sýndi á sunnudagsfundinum.
Útvegsbankinn, og hann er eign alma landsmanna, átti að ábyrgjast mikinn hluta lánsins erlendis og leggja fram mörg hundruð þúsund íslenskar krónur í mannvirkið.
Þegar til korn, voru 4 af 5 fulltrúum í bankaráði Útvegsbankans mótfallnir því, að Útvegsbankinn héldi áfram í flatsæng og braski með Helga Guðmundssyni og Áka Jakobssyni. Bankaráðið hafði bæði skyldu og vald til að taka lokaákvörðunina um þetta efni, og bankaráðið áleit auðsýnilega, að það hefði betur vit á hvað bankanum hentaði um ábyrgðir og fjárútlát, heldur en kommúnistar á Siglufirði.
Sama bankaráð hafði nokkrum vikum áður tekið of Helga Guðmundssyni aðal forustuna un málefni bankans. Bandamönnum hans á Siglufirði má vera það ljóst, að hér eflir þýðir þeim ekki að gera til hans ósanngjarnar kröfur.
Ef um sæmilega mannaða fundarboðendur hefði verið að ræða, myndu þeir hafa sagt um málsmeðferð fundarins: Hér eru sumir menn, sem álíta landinu og bænum heppilegra að stækka Rauðku.
En hér eru líka aðrir menn, og alveg sérslaklega meirihluti verksmiðjustjórnar, sem er mótfallin þessari stækkun eins og hún er ráðgerð.
Við höldum fund um þetta mál og skiptum ræðutíma jafnt milli beggja aðila. Fundarmenn fá að heyra rökin frá báðum hliðum, og geta myndað sér skoðanir um málið.
En í stað þess beita fundarboðendur ýtrustu hlutdrægni í öllu, bæði um fundarsókn við útgerðarmen og sjómenn og síðan varna þeir öðrum málsaðilanum nálega alveg að geta skýrt málið frá sínu sjónarmiði.
Framkoma Finns Jónssonar, Erlends Þorsteinssonar og Áka Jakobssonar sýnir að þeir hafa ekki treyst sér að verja mál sitt nema með ofbeldi.
Þeir hafa vitað hve vonlaus var málstaður þeirra og þeir hafa, sem ekki er óskynsamlegt í sjálfu sér, vantreyst hæfileikum sínum til að mæta andstæðingunum í drengilegum rökræðum.
Fundarboðendur hafa þess vegna sýnt að þeir vantreystu bæði sjálfum sér og málstað sínum.
Hitt atriðið, tregða bankaráðsins að leggja út í verksmiðjubyggingu verður skiljanleg ef athugað er strand Helga Guðmundssonar með alveg hliðstætt mál fyrir nokkrum árum.
Hann ætlaði þá að hjálpa stóru Íslensku iðnfyrirtæki til að reisa mikil hús og kaupa dýrar vélar, en þegar nokkur byrjun var kornin á verkið, sprakk hann með framlög sin. Vélarnar voru komnar til landsins og stofnendurnir höfðu lagt fram mikið fé úr eigin vasa, en þegar Helgi gat ekki hjálpað meira, hættu framkvæmdirnar um stund. Útlendingarnir ætluðu að flytja vélarnar úr landi.
Eigendur fyrirtækisins og Útvegsbankinn myndu þá hafa tapað nálega hverjum eyri, sem þeir höfðu lagt í fyrirtækið. Annar banki hljóp í það sinn undir bagga og bjargaði fyrirtækinu en síst var það að þakka Helga Guðmundssyni.
Mér er ókunnugt um fjárhagsaðstöðu Útvegsbankans, en ég efast um að hún sé verulega sterkari heldur en á þessari slysatíð Helga Guðmundssonar. En yfirstjórn Útvegsbankans er áreiðanlega betur vakandi heldur en þá var.
Bankaráðið hefir öðlast meiri skilning á hæfileikum Helga Guðmundssonar og í því tilefni losað hann við þann húsbóndarétt í bankanum sem hann þráði svo mjög og hélt svo mjög á lofti.
Kommúnistar á Siglufirði hafa að líkindum ekki áttað sig á því að afstaða bandamanns þeirra í Útvegsbankanum hefir breyst að mjög verulegu leyti.
Bankaráðið mun, svo sem vonlegt er, vilja hafa trausta og fasta stjórn á málefnum þessarar stofnunar. Bankaráðinu myndi þykja mikil minnkun, ef bankinn legði til í fyrirlæki, sem ekki væri hægt að fullgera. Slík, ráðsmennska lamar banka og verður þeim oft að falli.
Það er óskiljanlegt með öllu, að Siglufjarðarbæ væri nokkur ávinningur í því, að Helgi Guðmundsson hefði endurtekið sitt fyrra ævintýri. Í það sinn var honum og fyrirtækinu bjargað, en hver segir að nú væri hægt að bjarga?
Sennilega færi gamanið af hinum skrúðmálu kommúnistum á Siglufirði, ef útlendingar byrjuðu að flytja burt vélar úr hálfsmíðaðri verksmiðju, en þar var komið hinu fyrra ævintýri Helga Guðmundssonar, þegar leiksoppum hans var bjargað úr höndum hans.
Langlundargeð sumra manna er nálega óendanlegt. En í svipinn er mér ekki ljóst, hvaða menn hefðu geð á því að taka við Áka, Erlendi og Finni, þegar Helgi Guðmundsson hefur misst þá úr fangi sínu.
J. J. |