ÁRAMÓT Á
SIGLUFIRÐI

Gleðilegt ár, og
þökk fyrir það gamla
Ég sendi ykkur áramótamynd
frá Siglufirði, en hún er tekin um miðnættið. Mjög gott veður var
hér um áramótin. Til marks um það, hve stillt var, logaði víða á
kertaljósi meðfram snjógöngunum sem húseigendur höfðu þurft að
moka sér, til að komast frá og að húsum sínum, vegna snjókomunnar
um daginn.
Mikið var um blys og brennur, og
áttu skíðamenn drýgstan þátt í að gera áramótin sem
eftirminnilegust með sínum alkunna dugnaði. Þeir klifu td.
Hólshyrnuna
og reistu þar gríðarmikinn "eld kross" sem sást vel frá
kaupstaðnum og raunar einnig, lengst til vinstri á meðfylgjandi mynd.
Einnig skreyttu þeir Hvanneyrarskálarbrúnina að vanda og komu fyrir
ártalinu 1963 sem lifði á til miðnættis en þá breyttist það í
1964. Einnig komu nokkrir fjallagarpar blysum ofan Gimbrakletta og
röðuðu þannig að myndaði stóra flösku.. Flugeldum var skotið,
ofl. ofl.
Engin kunnug meiðsl urðu á
mönnum, og aldrei fyrr hefur verið eins rólegt hjá lögreglunni.
-- SK
|