7000 mál til
Siglufjarðar
Siglufirði,.
19. sept.: Tvö síldar flutningaskip, Tempa og Vestbay, komu hingað í
morgun frá Seyðisfirði með samtals rúmlega 7000 mál síldar til
bræðslu. -- SK.
|
Síld
til Siglufjarðar
Siglufirði,
23. september. , HINGAÐ kom í dag með síld, Vestmannaeyjar báturinn
Gjafar VE 300. Var hann með
400- 500 mál, sem fóru í bræðslu
hjá Rauðku. -- SK
|
Miklar
útvarpstruflanir í Siglufirði
Siglufirði, 25. nóv.
SIGLFIRÐINGUM er nú
mörgum heitt í hamsi vegna
þess, hve illt er að hlusta á
Ríkisútvarpið, einkum eftir kl.
8 á kvöldin. Ekki er þó
kvartað undan efni útvarpsins,
heldur eru hlustunarskilyrðin
svona léleg.
Mörgum gramdist í
gærkvöldi, þegar seinasti þáttur
þriðjudagsleikritsins var leikinn,
en með því hefur verið mjög vel
fylgst hér. Má segja, að þessi
lokaþáttur hafi alveg farið
framhjá flestum
Siglfirðingum. Margs er getið, til,
hvað þessum truflunum valdi, og skal
ekki farið út í þá sálma hér, Þeir, sem geta tekið við F.M. bylgjum
á
tækjum sínum, munu hafa sloppið við truflanir,
en 30% hlustenda hér munu eiga slík
tæki. Nú er verið að safna undirskriftum
undir skjal; þar sem farið er fram á
úrbætur. Á þriðja hundrað manns hafa
þegar skrifað undir, og telst það
mikið í ekki stærri bæ -- SK
|

UM
Kl. 9 á þriðjudagsmorgun 22. september, sigldi síldarflutningaskipið Tempo á löndunarkrana nr: 1 hjá SR á Siglufirði og skemmdist hann talsvert, eins og meðfylgjandi mynd sýnir.
Ástæðan fyrir árekstrinum er talin vera vélabilun. |