Svipmyndir frá Siglufirði SÍÐAST LIÐNA nótt var saltað á Siglufirði hjá tveimur söltunarstöðvum, hjá Nöf og söltunarstöð Kaupfélegs Siglfirðinga, sagði fréttaritari Mbl. á Siglufirði, Stefán Friðbjarnarson, í viðtali við Mbl. í gær.
Tvö eða þrjú skip eru væntanleg með
söltunarsíld, sem m.a. fer til
söltunarstöðvar Ýmis h.f. Á Siglufirði
eru fullkomnustu og afkastamestu
síldarbræðslur landsins og telja
Siglfirðingar, að leggja beri áherslu á
að nýta þær
betur.

Þrjár siglfirskar blómarósir við
síldarsöltun hjá Nöf. lengst til
vinstri: Alda Möller sem hlaut hæstu
landsprófs einkunn sem gefin hefur verið
s.l. vor. Í miðið systir hennar Jóna,
síðan Guðrún Stefánsdóttir
Það hafa 4 skip á
vegum Síldarverksmiðja ríkisins verið í síldarflutningum í sumar. 230 þúsund mál
hafa nú farið í bræðslu, og er það
töluvert meira en á síðasta sumri. - Atvinna Siglfirðinga hefur byggst á
söltunarstöðvum. Starfandi er 21 söltunarstöð á Siglufirði , en þar af eru
13 söltunarstöðvar, sem ekkert hafa enn
fengið til söltunar. Í venjulegu árferði
hefur fólk haft atvinnu við síldina fram
undir áramót. Þegar kaup- tryggingar-
tímabilið rennur út um næstu mánaðamót
horfir því til hreinna vandræða nema
eitthvað sérstakt komi til sögunnar.
Unnið er nú að smíði tunnuverksmiðju í stað þeirrar sem brann s.l. vetur. Er áætlað, að þeir, sem hafa með bygginguna að gera,skili henni um mánaðarmót desember. Ráðgert er, að hin nýja tunnuverksmiðja taki til starfa upp úr áramótunum. Veltur á miklu að þessi áætlun standist og mundi hafa mikið að segja, að unnið væri á tveimur vöktum. - Ef þessi atvinnufyrirtæki, frystihúsin tvö, tunnuverksmiðjan og niðurlagninga- verksmiðjan á vegum Síldarverksmiðja ríkisins, verða vel rekin, er mesta vandanum bægt frá dyrum Siglfirðinga, sagði Stefán að lokum
.
Gjafar frá Vestmannaeyjum og Æskan frá
Siglufirði, við löndunarbryggju
Ísafold s.f. Nýtt löndunarband sem
flytur síldina frá skipum í síldarkassa
sést greinilega á myndinni.

Það
er langt ofan í tunnubotninn, þegar verkakonan er ung og smá. Fætur
lyftast frá bryggju - og við skulum vona að hún hafi komið síldinni
á sinn stað.
Myndirnar á síðunni tók
ljósmyndari Mbl. á Siglufirði í fyrri mánuði, þegar síld barst á Siglufjörð. Hennar hafði verið beðið með óþreyju og þegar hún loksins kom leyndi
sér ekki gleðisvipurinn á andliti fólksins. Það varð aftur líf og
fjör á síldarplaninu og Siglfirðingar vonuðu, að þetta yrði vísir
að öðru meiru. Ekki
eru allar fleytur af nýjustu gerð og með "öll" fullkomnustu veiði
og leitartæki", eins og segir í fréttum. En veiðiáhuginn er sá
sami, þótt skipið sé af frumlegri gerð og róa þurfi með
heimatilbúnum árum. Og oftast er komið í vör með dágóða veiði,
því sumum nægir snæri og krókur

|