Skuttogarinn
"Siglfirðingur" farinn á veiðar 
Siglfirðingur
SI 150 kemur til Siglufjarðar aðfaranótt mánudags 6. júlí 1964
SIGLUFIRÐI,
9. júlí.
HINN
nýi
skuttogari, SIGLFIRÐINGUR SI 150, kom til Siglufjarðar aðfaranótt mánudags 6. júlí. Skipið hélt út á veiðar aðfaranótt
miðvikudags, en hefur enn ekkert fengið,
enda engin veiði verið.
Skipið fór út með síldarnót af fullkomnasta tagi, en
siðar er von á Þýsku flottrolli,
sem ætlunin er að reyna í
sumar. Skipið
er
alger nýjung í skipastól Íslendinga.
það er 270 tonn, búið öllum
fullkomnustu tækjum. Á heimliðinni reyndist það vel; mestur siglingarhraði 12
mílur Skipið
er eign Siglfirðings hf. en aðalhluthafar þess
eru yfirmenn skipsins, Kaupfélag
Siglfirðinga og framkvæmdastjóra félagsins Eyþór Hallsson.
Skipstjóri
er Páll Gestsson, stýrimaður Axel
Schiöth og 1. vélstjóri Agnar Þór Haraldsson;
allt ungir Siglfirskir sjómenn.
St.
Athugasemd
S.K. árið 2001, Til fróðleiks:
Skuttogarinn Siglfirðingur
SI 150, er fyrsti Skuttogarinn sem smíðaður er erlendis
fyrir Íslendinga. Skuttogarinn Dagný SI 70, er fyrsti Skuttogarinn
sem keyptur er notaður til Íslands og Skuttogarinn Stálvík SI
1, er fyrsti Skuttogarinn sem smíðaður er á Íslandi. Siglfirðingar
voru frumkvöðlar í skuttogara útgerð. á þessum tímum. |